Hröðustu flatir sem til eru Stefán Árni Pálsson skrifar 9. apríl 2026 08:02 Ingi Rúnar hefur trú á sænskum kylfingi á Masters. Fyrsta risamót ársins í golfi hefst í kvöld á Augusta vellinum í Georgíu. Mastersmótið var haldið fyrst árið 1934 en sérfræðingur Sýnar Sports segir að um sé að ræða eitt erfiðasta mótið í golfi.
Gríðarlega erftirsóknarvert er fyrir bestu kylfinga heims að fá að klæðast græna jakkanum fræga. Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy tryggði sér sigur í Mastersmótinu fyrir ári síðan og það í fyrsta sinn á sínum ferli. Þá tókst honum að loka ákveðnum hring, að vinna öll fjögur risamótin. „Svíinn, Ludvig Åberg, er sá sem að ég tel vera líklegastan í dag. Hann er búinn að eiga frábær mót að undanförnu. Cameron Young er síðan leikmaður sem að gæti loksins klárað alvörumót,“ segir Ingi Rúnar Gíslason sérfræðingur Sýnar Sports í golfi. Augusta völlurinn er alltaf sviðið á Masters en árlega eru gerður breytingar á vellinum til að gera hann erfiðari. „Hann er svipaður og mjög krefjandi og þeir gera völlinn alltaf örlítið erfiðari ár eftir ár. Við erum að sjá einar hröðustu flatir sem til eru. Þetta er náttúrulega bara listigarður og æðislegur golfvöllur, draumavöllur að mati flestra kylfinga.“ Tiger Woods setti stefnuna á að taka þátt á Maters í ár en hann lenti í bílslysi á dögunum og getur ekki verið með að þessu sinni. „Það er eitthvað smá bras á Tiger. Hann hefur öðrum hnöppum að hneppa núna. Rory var stórkostlegur í fyrra og þessi dramatík á lokahringnum í fyrra var mögnuð, en það hefur enginn kylfingur náð að verja Masters titil síðan 2002 þegar að Tiger Woods varði titilinn. Eina sem að Masters hefur umfram öll hin mótin er að hann er alltaf leikinn á sama velli.“ Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni. Masters hefst á Sýn Sport 2 klukkan 17:00 í dag.
Golf Masters-mótið Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira