Flick fannst grasið ekki nógu vel slegið hjá Atlético Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. apríl 2026 08:32 Hansi Flick fannst grasið full hátt. Alberto Gardin/Eurasia Sport Images/Getty Images Hansi Flick, þjálfari Barcelona, telur Atlético Madrid reyna að beita brellibrögðum til að hægja á leik Börsunga þegar liðin mætast í Meistaradeildinni í kvöld.
Barcelona æfði á Vicenté Calderón leikvanginum í Madríd í gær, fyrir seinni leik liðanna sem fer fram í kvöld. Atlético er með 2-0 forystu í einvíginu eftir fyrri leikinn á Nývangi. Eftir æfingu kvartaði Hansi Flick til eftirlitsmanns UEFA og sagði grasið á vellinum vera illa slegið. ¡Entrenamiento en marcha! 🫡 pic.twitter.com/dqLAI9eEsE— FC Barcelona (@FCBarcelona_es) April 13, 2026 Spænski miðillinn Marca greinir frá og segir UEFA hafa brugðist hratt við. Sambandið sé með málið til rannsóknar og muni skipa Atletico að slá grasið ef þess þarf. Samkvæmt reglum UEFA má grasið ekki vera hærri en 30 millimetrar og verður að vera jafnt slegið yfir allan völlinn. Yamal: Þurfum ekki kraftaverk Hvernig sem vallaraðstæður verða segir Lamine Yamal að Barcelona þurfi ekki á kraftaverki að halda til að snúa við 0-2 stöðu í einvíginu. „Við megum ekki hugsa um það þannig að það þurfi kraftaverk til að snúa einvíginu við. Við munum bara halda áfram að spila eins og við höfum verið að gera, við byrjum bara 2-0 undir,“ sagði Yamal. Tiene muchas ganas. pic.twitter.com/NQvydhikiR— FC Barcelona (@FCBarcelona_es) April 13, 2026 Barcelona hefur unnið Meistaradeildina fimm sinnum en ekki síðan árið 2015. Á síðustu tveimur tímabilum hefur liðið dottið út í átta liða úrslitum og undanúrslitum, gegn PSG og Inter. „Barcelona hefur verið að eltast við Meistaradeildina í nokkur ár núna. Við erum hungraðir að halda áfram í næstu umferð og munum gefa allt í þetta. Ásamt HM er Meistaradeildin það mikilvægasta í fótboltanum. Það segir allt sem segja þarf. Mig hefur alltaf dreymt um að vinna Meistaradeildina með Barca,“ bætti Yamal við.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla FC Barcelona Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Sjá meira