Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Sindri Sverrisson skrifar 16. apríl 2026 13:31 Bernardo Silva hefur unnið hvern titilinn á fætur öðrum með Manchester City. Getty/Simon Stacpoole Bernardo Silva tilkynnti í dag að hann myndi yfirgefa Manchester City í sumar. Þessi 31 árs gamli Portúgali hefur unnið hvern titilinn á fætur öðrum frá því að hann kom frá Monaco sumarið 2017.
Silva hefur á níu árum með City spilað 451 leik, skorað í þeim 76 mörk og gefið 77 stoðsendingar. Hann getur státað sig af því að hafa að meðaltali unnið titil á aðeins 24 leikja fresti því titlarnir eru orðnir 19 talsins. Enn gæti bæst í safnið því City er komið í undanúrslit enska bikarsins og getur minnkað forskot Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í þrjú stig með sigri í stórleiknum á sunnudaginn, og enn átt leik til góða. „Þegar ég kom fyrir 9 árum síðan var ég að elta draum lítils drengs, um að ná árangri í lífinu og afreka stóra hluti. Þessi borg og þetta félag gáfu mér miklu meira en það, miklu meira en ég hafði nokkurn tíma vonast eftir. Það sem við unnum og afrekuðum saman er arfleifð sem verður að eilífu geymd í hjarta mínu. Hundrað stiga tímabilið, innlenda fernan, þrennan, fjórir í röð og margt fleira… Það var ekki svo slæmt,“ skrifaði Silva í kveðjupistli á samfélagsmiðlum. Silva vann síðast deildabikarinn, með sigri á Arsenal í úrslitaleik þar sem hann bar fyrirliðabandið. Hann hefur unnið sex Englandsmeistaratitla, Evrópumeistaratitil, tvo bikarmeistaratitla, fimm deildabikarmeistaratitla, þrjá Samfélagsskildi, HM félagsliða og Ofurbikar UEFA.
Enski boltinn Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Sjá meira