Frá orðum til aðgerða – Málefni fatlaðs fólks í Hafnarfirði Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar 21. apríl 2026 16:02 Á undanförnum árum hefur Hafnarfjarðarbær unnið markvisst að því að koma málefnum fatlaðs fólks á dagskrá undir forystu Framsóknar. Ný skýrsla starfshóps um framtíðarsýn í málefnum fatlaðs fólks í Hafnarfirði, sem undirrituð leiddi, endurspeglar þessa vegferð. Í skýrslunni eru skilgreindir fimm lykilþættir sem mynda grunn að áframhaldandi uppbyggingu í málaflokknum en það eru: þjónusta, aðgengi, virkni, sjálfstæði og vitund. Aðgengi og þjónusta sem virkar Þjónustan sem fatlað fólk fær þarf að vera samfelld, samþætt og þverfagleg. Þegar stefnu skortir verður kerfið brotakennt og ábyrgðin óljós. Hætta skapast á að einstaklingar falli á milli kerfa. Mikilvæg skref hafa verið stigin í að efla þjónustu við fatlað fólk með ólíkar þarfir en enn eru áskoranir sem takast þarf á við. Akstursþjónustan þarf að vera áreiðanleg og mæta þörfum notenda, enda er hún lykilforsenda þátttöku í daglegu lífi. Aðgengismál segja meira um samfélag en flest annað enda um grundvallararréttindi að ræða. Þar er ekki aðeins átt við aðgengi að mannvirkjum og gönguleiðum, heldur einnig aðgengi að rafrænt aðgengi að upplýsingum og þjónustu. Ef aðgengi er ábótavant er verið að útiloka fólk frá þátttöku í samfélaginu. Þess vegna þarf að efla hlutverk aðgengisfulltrúa og tryggja að raddir fatlaðs fólks heyrist með innleiðingu persónulegra talsmanna. Virkni og sjálfstæði styrkja samfélagið Þátttaka í samfélaginu er lykill að jöfnum tækifærum. Styðja þarf áfram við virkni fatlaðs fólks í Hafnarfirði þegar kemur að atvinnuþátttöku og aðgengi að fjölbreyttri menntun sem hæfir hverjum og einum, ásamt því að styrkja þarf félagslega þátttöku. Samfélag sem nýtir hæfileika allra og mannauð er sterkara samfélag. Sjálfstæði er rauði þráðurinn í allri stefnumótun. Fólk á rétt á að lifa lífi sínu á eigin forsendum, með stuðningi sem tekur mið af þörfum þess. Fjölbreyttir búsetukostir eru þar lykilatriði og áfram þarf að byggja upp lausnir sem virða sjálfræði einstaklinga. Aukin vitund skapar betri bæjarbrag Viðhorf skipta miklu máli. Fordómar og staðalímyndir hverfa ekki af sjálfu sér og þeim er viðhaldið ef ekkert er að gert. Með aukinni vitund um réttindi og aðstæður fatlaðs fólks má stuðla að opnara og réttlátara samfélagi. Þar gegna bæði fræðsla og opin umræða lykilhlutverki. Tryggja þarf að fatlað fólk þekki réttindi sín betur og að almenningur hafi skilning á lífi og aðstæðum þeirra. Áframhaldandi samvinna – með Framsókn í forystu Það er auðvelt að setja á blað fögur orð í þessum málaflokki. Það er hins vegar áskorun að koma þeim í framkvæmd. Leiðin fram á við felst í áframhaldandi samvinnu, samþættingu þjónustu og því að virkja þann mannauð sem býr í bænum okkar. Framsókn hefur sýnt það í verki með skýrri forystu og framtíðarsýn að Hafnarfjörður er samfélag þar sem allir eiga að hafa jöfn tækifæri til þátttöku og lífsgæða. Hafnarfjörður þarf áfram á Framsókn að halda til að ná þeim markmiðum. Höfundur er formaður samráðshóps í málefnum fatlaðs fólks í Hafnarfirði og skipar 7. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí nk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar