Stjörnurnar mættu með gufupotta til að hita takkaskóna Sindri Sverrisson skrifar 24. apríl 2026 07:33 Erling Haaland vill hafa sína skó mjúka og góða þegar hann klæðir sig í. Samsett/Getty/CleatPro Norska karlalandsliðið í fótbolta aflétti stórmótabölvun sinni með miklum glæsibrag í fyrra og kom sér á HM í Ameríku með miklum yfirburðum. Sérstakt gufutæki fyrir takkaskó leikmanna er meðal smáatriða sem talin eru hafa nýst liðinu við að komast loks á rétta braut.
Fjallað er um upprisu norska liðsins, eftir að hafa ekki komist á stórmót frá því árið 2000, í bókinni Oppstandelsen eftir Alfred Fidjestøl. Þar er meðal annars fjallað um það að stærstu stjörnur landsliðsins, Erling Haaland og Martin Ödegaard, hafi fengið í gegn að sérstök hitunartæki fyrir takkaskó yrðu tekin í notkun. Tæki sem þeir væru vanir hjá sínum félagsliðum. Vilja skóna eins mjúka og hægt er „Á meðan leikmennirnir gerðu undirbúningsæfingar var öllum fótboltaskónum safnað saman og þeir settir í tvo stóra gufupotta sem starfsliðið hafði sjálft flutt með sér frá Ullevaal. Í þeim voru skórnir látnir liggja í 75 gráðu heitri vatnsgufu,“ segir í bókinni. Tilgangurinn með þessu er að gera skóna eins mjúka og hægt er, svo að þeir leggist eins og sokkur að fótum leikmanna þegar þeir klæða sig í þá. Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, segir í samtali við TV 2 að hann hafi aldrei áður verið búinn að heyra um þessar aðferðir en er ánægður með þær. „Þetta hljómar ekki eins og dýrasta bragðið í bókinni svo það er líklega skynsamlegt. Það lítur út fyrir að það virki, svo það er eitthvað sem við verðum að taka með okkur,“ sagði þjálfarinn.
Norski boltinn Fótbolti Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Sjá meira