„Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Árni Gísli Magnússon skrifar 23. apríl 2026 20:19 Aron Birkir átti góðan leik fyrir Þórsliðið. þór akureyri Aron Birkir Stefánsson, markmaður og jafnframt fyrirliði Þórs, átti frábæran leik á milli stanganna þegar Þór sigraði Fram á glænýjum VÍS-velli fyrir norðan í dag í þriðju umferð Bestu deildar karla.
Leiknum lauk með 1-0 sigri Þórs þar sem Framarar fóru illa með mörg færi og voru Aron og hans teymi í öftustu línu svo sannarlega í stuði. „Sterkur sigur, karakter sigur. Í fyrri hálfleik, fyrstu fimm, tíu eða kannski fimmtán aðeins að finna taktinn svo fannst mér við eiginlega vera með tökin svona stóran part af fyrri hálfleik svo skorar Seba (Sebastian Haugland) þetta geggjaða mark og við pínu að þjást eftir það en bara stemning sko.“ Þórsarar komust lítið í takt við leikinn fyrstu 20-25 mínúturnar og leit út fyrir að vera eitthvað stress hjá liðinu. „Já greinilega, ég veit ekki hvað það var heldur, þetta er yfirleitt búið að vera svona í fyrstu tveimur, svona smá stress, en svo er það farið. Mér fannst við ná að yfirstíga það meira núna og vera betri eftir þann part af fyrri hálfleik“. Það er í raun ótrúlegt að Fram hafi ekki skorað mark í dag miðað við færin sem liðið fékk og pressuna sem var sett á Þórsliðið undir lokin. „Það er fínt að vera með (Yann) Affi, og Ása (Ásbjörn Líndal) þarna, þeir voru í stuði, og bara allir náttúrulega en sérstaklega þeir tveir. Þeir voru geggjaðir í dag.“ Þórsarar vígðu nýjan völl í dag og var mætingin á völlinn alveg frábær og veðrið gott. Þá var þetta fyrsti heimaleikur Þórs í efstu deild í 12 ár og því stór dagur sem Aron er þakklátur fyrir. „Bara geðveikt að fá fulla Þórsstúku hérna í dag á nýjum velli og ég veit ekki hvað það er búið að eyða mörgum klukkutímum í að græja þetta og bara stórt hrós á alla sem komu að því og vonandi helst þetta bara áfram. Er ekki næsti heimaleikur KA? Það verður slatti af fólki þar“, sagði Aron að lokun og gekk sáttur í átt að klefanum.
Íslenski boltinn Þór Akureyri Besta deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir KR - Víkingur R. | Geta tryggt Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Haukar og Selfoss leika til úrslita Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Sjá meira