Breytt vinnubrögð í mótun geðheilbrigðisþjónustunnar – draumsýn eða veruleiki? Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar 28. apríl 2026 16:01 Reynsla fólks af geðheilbrigðisþjónustunni og reynslan af því að hafa misst tökin á tilverunni sökum geðheilsubrests eru verðmæti sem nú loksins er farið að meta. Í henni felst ekki einungis sérfræðiþekking, heldur er hún atvinnuskapandi. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO Europe), hefur sl. misseri staðið fyrir vinnustofum sem miða að því að byggja upp og/eða styrkja jafningjanálgun í batamiðaðri geðheilbrigðisþjónustu. Verkefnið er kallað: Að umbreyta geðheilsu með reynslu (Transforming Mental Health through Lived Experience). Fjórir fulltrúar frá Íslandi taka nú þátt í þessu verkefni WHO til að læra hvað felst í samsköpun, samvinnu og samhæfingu (co-creation, collaboration and integration), sem og hvað þurfi til svo hægt sé að innleiða jafningjageðheilbrigðisþjónustu, nýta stafræn verkfæri í ferlinu og styrkja jafningjaáherslur í stefnumótun. Geðhjálp hefur lengi verið í fararbroddi þegar kemur að því að benda á fleiri valkosti í geðheilbrigðismálum, en fulltrúar Geðhjálpar hafa tekið þátt í alls kyns nefndum og ráðum til að hafa áhrif. Hins vegar hefur þátttakan aldrei innleitt samsköpun á þann hátt sem WHO leggur nú áherslu á. Með samsköpun hafa áherslur í þjónustunni breyst og fleiri leiðir opnast. Örugg búseta hefur verið sett í forgrunn ásamt því að tilheyra, eignast vini, elska, hafa eitthvað fyrir stafni, gefa af sér og vera hluti af samfélagi. Ráðamenn hafa reynt að styrkja jafningjasýnina með því að fjölga úrræðum, standa fyrir málþingum þar sem fagaðilar og jafningjar miðla af sinni þekkingu og reynslu og setja mikilvægi jafningjasýnar við stefnumótun. Traustur kjarni, félagasamtök hér á Íslandi, hafa rutt brautina fyrir formlegt nám jafningjastarfsmanna í samstarfi við alþjóðasamtökin Intentional Peer Support (IPS) sem byggir á reynslu fólks hvað virkar best í bataferlinu, en Geðsvið Landspítalans hefur í framhaldinu ráðið jafningjastarfsmenn. Traustur kjarni fékk jafnframt félags- og húsnæðismálaráðuneytið ásamt heilbrigðisráðuneytinu til að styrkja nám á vegum Yale háskóla sem snýr að því að efla leiðtoga með notendareynslu sem ber heitið LET(s) Lead (Transformational Leadership Through Lived Experience). Auk þess styttist í að skjólshús, sem er ætlað að vera val við hefðbundna nálgun í lífskrísum, verði opnað en þar verður að fá þjónustu veitta af jafningjum. Slík úrræði er að finna víða um heim og hafa reynst afar vel, bæði sem mótvægi og viðbót við hefðbundna nálgun. Þá stendur Nordplus um þessar mundir fyrir verkefni sem setur jafningjaþekkingu á oddinn. Nordplus er menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar, sem stuðlar að því að efla samvinnu og gæði í menntun á Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum. Ísland tekur þátt í þessu verkefni ásamt Noregi, Svíþjóð, Danmörku, og Litáen. Hópurinn hefur safnað saman upplýsingum um hver staða jafningja er í hverju landi fyrir sig, sem og alls kyns fróðleik um hlutverk jafningjastarfsmanna, menntunarmöguleika og undirbúningsvinnu við innleiðingu jafningjasýnar. Hver þjóð leggur til námsefni, en Ísland hefur t.d. búið til stutt myndbönd um reynslu fólks af jafningjastarfsmönnum og því að vera jafningjastarfmaður, sem aðgengilegt verður á netinu. Samsköpun er ekki aðeins besta leiðin þegar kemur að því að bæta þjónustu fyrir fólk með geðrænar áskoranir, því einstaklingar með fíknivanda og/eða þeir sem hafa afplánað dóm ættu einnig að taka þátt í samsköpunarverkefni um þjónustu sem þeim stendur til boða. Þeir hafa þekkingu á hvar brotalamirnar eru í kerfinu og hvað virkar og hvað ekki. Geðráð hefur nú starfað frá 2023. Geðráði er ætlað að vera breiður samráðsvettvangur fagaðila um geðheilbrigðismál þar sem stjórnvöld, notendur, aðstandendur og fagfólk fjallar um málaflokkinn og komi þannig að mótun stefnu, stöðugum umbótum og framþróun í honum. Nú hefur heilbrigðisráðuneytið gefið ákveðinn tón með því að senda fulltrúa frá Íslandi til að taka þátt í vinnustofum um samsköpun. Mín tillaga er sú að Geðráðið fái að spreyta sig í samsköpun um eitthvað ákveðið verkefni, til að meta hvort þessi nálgun sé raunhæf hér heima eða bara draumsýn. Höfundur er iðjuþjálfi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elín Ebba Ásmundsdóttir Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar