Öflugt atvinnulíf á Akureyri Ragnar Sverrisson skrifar 29. apríl 2026 08:52 Þegar við kjósum nú á vordögum fólk til að sitja í bæjarstjórn næsta kjörtímabil hlýtur hugurinn að beinast að því hvað flokkar og framboð ætla sér í frekari uppbyggingu atvinnuvega þessa samfélags okkar. Auðvitað eru að mörgu leyti öflugar atvinnugreinar hér í bæ nú þegar en til þess að stækka hann enn meira, og gera að raunverulegri höfuðborg Norðurlands, er heldur betur ástæða til að spýta í lófana og það ekki seinna en strax. Hin síðari ár hefur athyglin beinst að þessu leyti að miðbænum okkar, hvernig hann verður best skipulagður með tilliti til að skapa þar heilbrigt og fjölbreytt mannlíf ásamt með öflugu atvinnulífi. Sannleikurinn er sá að nútímaatvinnulíf er ekki einasta reykspúandi verksmiðjur og mengandi fyrirtæki heldur miklu frekar fyrirtæki sem byggja á nýjustu tækni og vísindum og ástunda nýsköpun sem gjarnan er seld til fjarlægra landa. Þarna eru sóknarfærin og störf sem geta boðið starfsfólki sínu hæstu laun og góða vinnuaðstöðu. Þess vegna skiptir þróun miðbæjarins okkar miklu máli um hvernig atvinnulífinu vindur fram á næstu árum og áratugum. Nú liggur fyrir að á allra næstu árum verður miðbæjarsvæðið fyrir ofan Hof byggt myndarlega upp enda þótt ég og fleiri hafi gert alvarlegar athugasemdir við einstaka útfærslur. Engu að síður munu rísa myndarlegar byggingar á svæðinu þarna sem þjónustufyrirtæki við bæjarbúa verða á neðstu hæðum og íbúðir og fyrirtæki á þeim efri. Þar munu mörg fyrirtæki í tækni- og vísindagreinum geta komið sér vel fyrir með öflugt mennta- og skólakerfi bæjarins að bakhjarli ásamt framleiðslufyrirtækjum víða um bæinn sem selja frá sér verðmætar afurðir um víða veröld. Við þetta bætist svo að innan skamms verða hús endurbyggð efst í Gránufélagsgötunni og þar í grennd. Fjölgar þá enn atvinnugreinum í miðbænum og meira líf færist í svæði sem hefur verið heldur dauft unanfarið en ætti að geta fylgt eftir þjónustufyrirtækjum eins og þeim sem þá hafa væntanlega komið sér vel fyrir á Hofsbótarreitnum. Svo er auðvitað fram undan stóra stökkið sem margir bíða spenntir eftir. Það er uppbygging á framhaldi miðbæjarins til norðurs þar sem íþróttavöllurinn okkar góði hefur verið síðustu áratugi. Sjálfur hef ég vakið athygli á mikilvægi þess að útfærslan á því svæði fari fram í nánu samstarfi við bæjarbúa og með því virt raunverulegt íbúalýðræði. Í því sambandi hef ég lagt til að þarna yrði, auk miðbæjarhúsa eins og sunnar í bænum, skipulögð stærri og smærri útivistarsvæði fyrir bæjarbúa og gesti þeirra. Eftir það gætum við státað af myndarlegum og vistvænum miðbæ allt sunnan frá gamla góða Samkomuhúsinu og norður að Glerártorgi. Þá yrði nú aldeilis gaman að fara í miðbæinn okkar, sýna sig og sjá aðra! Iðandi mannlíf og öflug þjónusta fjölbreyttra fyrirtækja við bæjarbúa ásamt með kröftugu atvinnulífi. Að vísu má búast við að sjálfur muni ég horfa á þessa heillandi framtíðarmynd úr Sumarlandinu ef ég fæ vist þar! En hvað sem öllu gríni líður er meira en tímabært að hefja vinnu við þau viðfangsefni sem nauðsynleg eru til að draumurinn um öflugan miðbæ gangi eftir. Slíkur miðbær gæti orðið sómi og stolt okkar um ókomin ár. Til að svo megi verða þarf að vinna skipulega og markvisst með skýra framtíðarsýn en rugla ekki fram og aftur eftir sérvisku einstakra bæjarfulltrúa. Höfundur skipar 22. sæti S-listans á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Skoðun Skoðun Kosningar og leikskólamál Sigríður Clausen skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar Skoðun Þetta gerðum við á 15 mánuðum Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Fullveldið er falið í gagnaeign Hjörtur Smárason skrifar Skoðun Borgar menning sig? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hvar slær hjarta kjósenda? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar
Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar