Íslenski boltinn

Conteh lánaður til Kefla­víkur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Alpha Conteh er kominn í Keflavíkurtreyjuna.
Alpha Conteh er kominn í Keflavíkurtreyjuna. knattspyrnudeild keflavíkur

Keflavík hefur fengið Alpha Conteh að láni frá Stjörnunni út tímabilið í Bestu deild karla.

Conteh er 25 ára gamall sóknarmaður sem gekk til liðs við Stjörnuna á síðasta tímabili.

Conteh hefur hins vegar ekki fengið jafn stórt hlutverk hjá liðinu og samlandi sinn frá Síerra Leóne, Ibrahim Turay, sem kom á sama tíma til Stjörnunnar.

Keflavík hefur því fengið Conteh að láni og fagnar komu hans.

Annasamur dagur á skrifstofum Keflavíkur

Knattspyrnudeild Keflavíkur er ekki eina deildin innan félagsins sem handsalaði samning í dag. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur tilkynnti í morgun að þjálfarateymi karlaliðsins yrði áfram við stjórnvölinn á næsta tímabili.

Daníel Guðni Guðmundsson tók við liðinu fyrir síðasta tímabil og stýrði Keflvíkingum til 5. sætis í Bónus deildinni. Liðið féll svo úr úrslitakeppninni í oddaleik gegn Val í átta liða úrslitum.

Daníel Guðni gerði tveggja ára samning á síðasta ári og sá samningur var heiðraður með handabandi í dag.

„Mikil ánægja var með störf þeirra á síðasta tímabili og við erum spennt fyrir áframhaldandi samstarfi. Undirbúningur fyrir komandi tímabil er nú þegar hafinn og við förum full tilhlökkunar inn í sumarið,” segir í tilkynningu Keflavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×