Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Sindri Sverrisson skrifar 29. apríl 2026 17:50 Glódís Perla og stöllur hennar eru þegar búnar að tryggja sér þýska meistaratitilinn í ár, fjórða árið í röð. Getty/Soeren Stache Glódís Perla Viggósdóttir heldur áfram að bæta fjöðrum í hatt sinn því í kvöld spilaði hún sinn hundraðasta leik í þýsku 1. deildinni í fótbolta.
Glódís er fyrirliði Bayern og nánast alltaf í byrjunarliði en í tímamótaleiknum í kvöld, sjálfsagt vegna stórleiksins við Barcelona sem bíður á sunnudaginn, kom hún inná sem varamaður. Bayern mætti þá Werder Bremen á útivelli og fagnaði 2-0 sigri í þessum hundraðasta deildarleik Glódísar í Þýskalandi. Hún lék síðustu tuttugu mínúturnar en þá þegar höfðu Natalia Padilla-Bidas og Pernille Harder, úr víti, skorað mörkin tvö. View this post on Instagram A post shared by FC Bayern Frauen (@fcbfrauen) Glódís hefur átt gríðarlegri velgengni að fagna með Bayern frá því að hún kom til félagsins frá Rosengård í Svíþjóð sumarið 2021. Hún hefur nú orðið Þýskalandsmeistari með liðinu fjögur ár í röð og hefur Bayern haft mikla yfirburði í vetur, unnið 22 af 23 leikjum og gert eitt jafntefli, og er liðið heilum 18 stigum á undan næsta liði, Wolfsburg. Bayern hefur núna unnið tuttugu deildarleiki í röð. Eins og fyrr segir er næsti leikur Bayern við Barcelona, á Spáni á sunnudaginn, eftir að liðin gerðu 1-1 jafntefli í Þýskalandi í fyrri leik sínum í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Bayern á einnig eftir þrjá deildarleiki og úrslitaleik við Wolfsburg 14. maí í þýska bikarnum, og gæti því enn unnið þrennuna eftirsóttu.
Þýski boltinn Mest lesið Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Sport Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti „Það er skellur“ Íslenski boltinn Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Enski boltinn Kjartan Kári á leiðinni í Víking Íslenski boltinn Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Fótbolti Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Enski boltinn Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Kjartan Kári á leiðinni í Víking Kokhraustur eftir neyðarfund Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Sjá meira