Sagan segir að KR verði meistari Sindri Sverrisson skrifar 4. maí 2026 07:30 Stefán Árni Geirsson skoraði tvö marka KR gegn Val á laugardagskvöld. vísir/Diego Í öll þau skipti sem lið hefur unnið fimm fyrstu leiki sína, í efstu deild karla í fótbolta á þessari öld, hefur það lið fagnað Íslandsmeistaratitli í lok leiktíðar.
Um þetta fjallar Víðir Sigurðsson, íþróttafréttamaður og höfundur bókanna Íslensk knattspyrna, í pistli á Facebook eftir að fimmtu umferð Bestu deildarinnar lauk í gær. KR vann þá afar sannfærandi og góðan 4-1 sigur gegn Val á Hlíðarenda og hefur þar með unnið fimm fyrstu leiki sína, skorað heil 22 mörk en fengið á sig 9. Mörkin úr sigrinum gegn Val má sjá hér að neðan. KR er þó aðeins með tveggja stiga forskot á ríkjandi Íslandsmeistara Víkings sem á föstudaginn taka á móti nýliðum Þórs á meðan að KR-ingar fara í Garðabæ og mæta Stjörnunni. Gerst fjórum sinnum á þessari öld Víðir bendir á að það hafi fjórum sinnum gerst á þessari öld að lið byrji leiktíð á að vinna fyrstu fimm leikina, og alltaf unnu þau titilinn í kjölfarið. Þetta gerði Víkingur 2023 og Breiðablik 2022, sem og gullaldarlið FH árin 2005 og 2006. Ef horft er lengra aftur í söguna þá voru það KR-ingar sem urðu fyrstir allra til að byrja mótið á fimm sigrum, árið 1959, og í kjölfarið unnu þeir titilinn. Alls hafa tólf lið byrjað mótið á að vinna fimm leiki og níu þeirra enduðu á að vinna titilinn. Tvisvar endaði viðkomandi lið í 2. sæti en árið 1997 fataðist Keflvíkingum heldur betur flugið og enduðu í 6. sæti, þrátt fyrir slíka draumabyrjun.
Besta deild karla KR Tengdar fréttir Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Ósætti var milli leikmanna KR og Hermanns Hreiðarssonar, þjálfara Vals, eftir leik liðanna að Hlíðarenda í gær. Hermann er sakaður um að hafa kýlt Ástbjörn Þórðarson, leikmann KR, í þindina. 3. maí 2026 11:52 Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð KR vann sannfærandi 4-1 sigur á Val í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Liðið er áfram með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. 2. maí 2026 22:30 „Eins og stúdentsprófin í MR“ „Ég er auðvitað bara mjög ánægður. Þetta var mjög öflug frammistaða. Það er fátt betra í fótboltalífinu manns en að vinna Val á Hlíðarenda,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 4-1 sigur hans manna á Val í Bestu deild karla í kvöld. 2. maí 2026 22:06 Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ „Það er erfitt að eiga við okkur“ Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Grótta sótti þrjú stig á Ísafjörð og vandræði Vestra halda áfram Heldur brasið áfram á Brazell í Bestu deildinni? Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki „Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum Uppgjörið: ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim Komnir með fleiri stig en í fyrra og eiga enn tíu leiki eftir Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum „Þetta er kvikindisleg spurning“ Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn Uppgjörið: Fram - Valur 4-1 | Valur situr sem fastast á botninum Uppgjörið: ÍBV - FH 2-2 | Eyjakonur sóttu stig á lokamínútunni Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sigríður á skotskónum og víti forgörðum Sjá meira
Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Ósætti var milli leikmanna KR og Hermanns Hreiðarssonar, þjálfara Vals, eftir leik liðanna að Hlíðarenda í gær. Hermann er sakaður um að hafa kýlt Ástbjörn Þórðarson, leikmann KR, í þindina. 3. maí 2026 11:52
Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð KR vann sannfærandi 4-1 sigur á Val í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Liðið er áfram með fullt hús stiga á toppi deildarinnar. 2. maí 2026 22:30
„Eins og stúdentsprófin í MR“ „Ég er auðvitað bara mjög ánægður. Þetta var mjög öflug frammistaða. Það er fátt betra í fótboltalífinu manns en að vinna Val á Hlíðarenda,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 4-1 sigur hans manna á Val í Bestu deild karla í kvöld. 2. maí 2026 22:06