„Lélegi leikurinn hans er sjöa“ Sindri Sverrisson skrifar 6. maí 2026 11:01 Declan Rice og Myles Lewis-Skelly fögnuðu vel eftir að hafa tryggt sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Getty/Justin Setterfield „Hann er gjörsamlega ómetanlegur fyrir þetta Arsenal-lið,“ segir Arnar Gunnlaugsson um Declan Rice, miðjumanninn magnaða sem var maður leiksins þegar Arsenal sló út Atlético Madrid í gærkvöld og kom sér í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.
Arnar og Kjartan Henry Finnbogason dásömuðu Rice í Meistaradeildarmörkunum, eftir 1-0 sigur Arsenal í gær, og Arnar benti á hve ótrúlega stöðugur Englendingurinn væri í sínum leik. „Lélegi leikurinn hans er „sjöa“. Það eru svo margir leikmenn sem eiga leik upp á níu en droppa svo niður í tvistinn. Jafnvel þó að hann gangi ekki heill til skógar þá sér hann til þess að leikur sinn sé alltaf sjöa,“ sagði Arnar en umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Umræða um Rice eftir sigur Arsenal „Ég held að það sé ekki til sá fermetri á vellinum sem hann var ekki búinn að kovera,“ sagði Arnar þegar hann ræddi um frammistöðu Rice í gærkvöld. „Hann er elegant hlaupari, þegar hann tekur þessi löngu skref sín. Það eru ekki margar sexur sem geta gert þetta [sagt þegar Rice hljóp fram kantinn og hristi af sér varnarmann]. Svo er hann sterkur í boxinu, átti sinn þátt í markinu… Það hefur verið gagnrýnt að það vanti aðeins upp á mörkin hans, og hann er stór og sterkur strákur sem á að taka meira til sín í boxinu, en klárlega átti hann lungann af leiknum að sinna meira varnar- en sóknarhlutverki. Arsenal er líka eitt af fáum toppliðum í heiminum sem sættir sig við að vera í lágvörn hluta af leik. Flest lið væru farin að stíga upp og pressa,“ sagði Arnar. Sjokk fyrir líkamann að fá smá pásu Kjartan Henry benti á að kærkomin hvíld í síðasta deildarleik gæti hafa gert að verkum að Rice var alveg sérstaklega vinnusamur og öflugur í gær. „Hann er vanur að spila 90 mínútur í öllum leikjum. Ég veit að það er eitthvað að í mjöðminni á honum en hann hefur bitið á jaxlinn og spilað nánast allar mínútur en hann fékk hálftíma pásu í síðasta leik, gegn Fulham. Ég held að Arteta hafi verið mjög feginn að komast í 3-0 því þá þorði hann að taka hann út af. Ég held að líkaminn hafi verið í sjokki að hafa fengið smá breik, því hann hljóp fyrir allan peninginn í kvöld.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Arsenal FC Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? „Vorum miklu betri allan tímann“ Sjá meira