Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Árni Sæberg skrifar 6. maí 2026 17:05 Þessi ferðalangur nýtti sér rennuna og var vonandi ekki lengur en fimm mínútur að taka farangurinn úr bílnum. Vísir/Vilhelm Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi úrskurð Neytendastofu að Isavia hafi gerst brotlegt við lög með því að hefja gjaldtöku í svokallaðri brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll.
Áfrýjunarnefndin kvað upp úrskurði á dögunum í tveimur málum sem varða kærur Isavia og Isavia innanlandsflugvalla vegna sektarákvarðana Neytendastofu gagnvart félögunum tveimur, sem teknar voru síðasta sumar, vegna bílastæða við flugvelli. Staðfest að hluta Í tilkynningu þess efnis á vef Neytendastofu segir að í báðum úrskurðum hafi áfrýjunarnefndin staðfest þann hluta ákvarðananna sem snýr að því að ekki væru veittar nægilega skýrar upplýsingar um þjónustugjald sem bætist við þegar krafa er send í heimabanka og fyrir að gefa til kynna að til staðar sé sjálfvirkt greiðslukerfi án þess að taka fram að virkja þurfi það sérstaklega. Sá hluti ákvarðananna sem snýr að tilgreiningu gjalds fyrir að nota stafrænar greiðslulausnir hafi hins vegar felld úr gildi og áfrýjunarnefndin í því samhengi litið til þess að greiðsluþjónustuveitandi væri sjálfstætt fyrirtæki og með því að greiða fyrir þjónustu Isavia með appi væru neytendur í raun að kaupa þjónustu af tveimur óskildum félögum. Þá hafi áfrýjunarnefndin fellt úr gildi þann hluta ákvörðunar Isavia ohf. sem sneri að svokallaðri brottfararrennu á Keflavíkurflugvelli. Stjórnvaldssekt Isavia var lækkuð úr 500 þúsund í 400 þúsund krónur og sekt Isavia innanlandsflugvalla úr 500 þúsund í 450 þúsund krónur. Neytendur hefðu getað misreiknað sig Greint var frá því í mars í fyrra að Isavia myndi hefja gjaldtöku í brottfararrennunni við Flugsstöð Leifs Eiríkssonar, sem ætluð er til þess að skutla þeim sem eru að fara í flug upp að dyrum, fimm mínútum eftir að ekið væri inn í rennuna. Í kafla úrskurðar nefndarinnar um rennuna segir að Neytendastofa hafi komist að þeirri niðurstöðu að Isavia hafi með fyrirkomulagi vegna gjaldheimtu í rennunni Keflavíkurflugvallar brotið gegn tilteknum ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Af ákvæðunum leiði að bannað er að viðhafa viðskiptahætti sem teljast óréttmætir og raska verulega eða eru líklegir til að raska verulega fjárhagslegri hegðun neytenda. Fyrir liggi að Isavia heimili neytendum að leggja í umræddri rennu í 5 mínútur gjaldfrjálst en að þeim tíma loknum sé rukkað 500 króna gjald á hverja mínútu. Hin kærða ákvörðun hafi að þessu leyti byggt á því að þrátt fyrir að neytendur hefðu góða sýn yfir rennuna væru ýmsar aðstæður sem gætu myndast sem yllu því að rennan stíflaðist og sem neytendur hefðu ekki stjórn á. Þá hafi verið vísað til þess að myndavélar væru staðsettar þannig að neytendur misreiknuðu þann tíma sem þeir hefðu til að leggja í rennunni, upplýsingar skorti um að þjónustugjald legðist á eftir 5 mínútna viðveru, umræddur tímarammi væru þröngur og neytendur gætu ekki hætt við kaup á þjónustunni eftir að ekið væri inn í rennuna. Ekki óraunhæft að fimm mínútur dugi Í úrskurðinum segir að í gögnum málsins liggi fyrir ýmsar myndir af aðstæðum í umræddri brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll. Flestar þeirra stafi frá Isavia en ekki Neytendastofu. Af myndunum verði ráðið að neytendum sé gert kunnugt um að þeim sé heimilt að leggja gjaldfrjálst í rennunni í 5 mínútur og að 500 króna gjald sé tekið fyrir hverja mínútu að því tímabili loknu. Engin gögn liggi fyrir sem gefa til kynna að neytendur séu nauðbeygðir til að aka inn í rennuna þegar þessum upplýsingum hefur verið komið á framfæri. Gögn skorti einnig sem styðji þá niðurstöðu Neytendastofu að staðsetning myndavéla leiði til þess að gjaldtakan feli í sér óréttmæta viðskiptahætti. Þá hefur Isavia bent á að neytendur eigi þess kost að leggja gjaldfrjálst í 15 mínútur á öðru bílastæði sem muni vera nálægt flugstöðinni og neytendum sé jafnframt gert kunnugt um. „Loks verður ekki séð að sú staðreynd að neytendur fá afar skamman tíma til að leggja bílum sínum í rennunni teljist ein og sér vera óréttmætir viðskiptahættir, enda ekkert sem bendir til þess að það sé með öllu óraunhæft að neytendur geti sinnt því erindi sínu að aka farþegum að flugstöðinni innan þess tíma.“ Því væri sá hluti ákvörðunar Neytendastofu sem snýr að rennunni felldur úr gildi.
Isavia Bílastæði Neytendur Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira