Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson og Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifa 7. maí 2026 14:33 Það vakti töluverða athygli á pallborði leigjendasamtakanna sem haldið var nýverið þegar Bjarni Guðjónsson, sem skipar annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, tók fyrir þann mikla skandal, sem í hans huga var að mögulega væri eitthvað fólk sem leigði hjá Félagsbústöðum komið yfir tekjumörk hjá Félagsbústöðum, en þau eru notuð til að sigta inn eingöngu þá sem lepja dauðann úr skel. sem miðað er við til að fá að leigja félagslegt húsnæði á Íslandi. Við skulum samt fyrst staldra við aðalatriðið áður en þessum vangaveltum Bjarna er svarað. Sem er hvernig við Íslendingar lítum á rétt fólks til húsnæðis, fyrir allan almenning og sérstaklega þau sem verst standa í samfélagi okkar. Stéttaskipting, verðbólga og ójöfnuður tilkomin vegna gróðafíknar eignafólksÁ Íslandi hefur húsnæðiskostnaður almennings aukist margfalt á við þá hækkun sem hefur orðið á meginlandi Evrópu. Húsnæðisverð hefur einnig hækkað tvöfalt meira en laun láglauna- og verkafólks sem útilokar þau sjálfkrafa sem kaupendur vegna reglna um skuldabyrði sem Seðlabankinn setur. Undanfarin 15 ár hefur því arðbærasta fjárfestingin hjá þeim sem eiga þess kost verið sú að kaupa húsnæði og leigja út, sem hefur valdið þjóðfélaginu margvíslegum vandræðum, m.a. dregið verulega úr annarri fjárfestingu, stóraukið mis- og stéttaskiptingu, verið einn stærsti einstaki drifkraftur verðbólgu (sem er staðreynd þrátt fyrir vangaveltur seðlabankastjóra um annað), valdið höfrungahlaupi launa og húsnæðiskostnaðar þar sem eignalausir og ungt fólk horfir í sífellu á drauma sína um öruggt heimili fyrir verða að engu. En leigusalarnir, fjárfestarnir og byggingarfyrirtæki á húsnæðismarkaði stórgræða á þannig ástandi, það sýna bæði hagtölur og stórfelldur gróði þessara aðila. Það er því borin von og merki um skerta vitsmuni að ætla þeim að leiðrétta ástandið að eigin frumkvæði, líkt og sumir frambjóðendur telja bestu leiðina út úr þeim ógöngum sem við erum í. Eina mótvægið við þessa dökku mynd sem hefur málast upp undir lúðrablæstri fyrri stjórnvalda og stærstu sveitafélaganna er og hefur alltaf verið stórtæk uppbygging og umsvif með félagslegt íbúðarhúsnæði. Ef við hinsvegar berum saman hlutfall félagslegs húsnæðis á Íslandi við annars staðar í Evrópu þá blasir við enn dekkri mynd. Hér erum við í um 4% af öllu húsnæði sem félagslegt húsnæði. Fyrir aldarfjórðungi var þetta hlutfall 11%, en fyrir var um það bil 18% af öllu húsnæði byggt innan byggingafélaga verkafólks. Það var því hátt í þriðjungur af öllu húsnæði sem hafði risið á óhagnaðardrifnum og félagslegum forsendum árið 2000. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn eyða óhagnaðardfinni uppbygginguEn árið 1999 var öllu slíku vafstri komið fyrir kattarnef af ríkisstjórn Sjálfstæðis og Framsóknarflokks. Markmiðið var að aðeins eitt módel yrði notað við uppbyggingu á íbúðarhúsnæði, eða eingöngu hagnaðardrifnar einkaframkvæmdir. Síðustu íbúðirnar voru reistar hjá byggingafélagi unga fólksins á Eiðsgranda einmitt sama ár. Árið 2003 var svo settur á fót Varasjóður húsnæðismála af sömu stjórnvöldum, sem hafði það eina hlutverk að þvinga í gegn og stýra sölu sveitarfélaganna á félagslegu húsnæði. Svo vel tókst til að 14 árum seinna, eða árið 2017 var hlutfallið komið í 2.47%, það langlægsta í gjörvallri Evrópu. Ef við berum okkur saman við nágrannalöndin þá er staðan m.a. Þessi Svíþjóð er í 20%, Danmörk 18%, Frakkland 20%, Holland 30% og svo mætti lengi telja. Og þar að auki gilda ströng skilyrði fyrir verðhækkunum leigu þar og réttarvernd leigjenda er mun sterkari en hér. Þess vegna er það sorglegt að heyra verðandi borgarfulltrúa varpa því fram að henda þurfi fólki út úr félagslegu húsnæði af því að það hafi mögulega skriðið aðeins yfir tilskilin tekjumörk. Höfum það í huga að á landinu eru um 12.000 börn sem lifa við fátækt og eru þau flest á almennum leigumarkaði þar sem foreldrar þeirra hafa ekki komist í skjól frá okurleigu og þurfa að afhenda leigusalanum allt að 80% af ráðstöfunartekjum sínum um hver mánaðarmót. Unga móðirinn sem Sjálfstæðismenn í borginni vilja á vergangEf við tökum dæmi um einstæða móður með eitt barn á sínu framfæri sem leigir hjá Félagsbústöðum. Hún greiðir um 200.000 kr í leigu fyrir litla íbúð, er í láglaunastarfi og undir tekjumörkum. Nema hvað að blessunarlega þá vænkaðist hagur þessarar ungu konu nýverið, hún fékk betri vinnu og örlítið betri laun sem varð til þess að hún skreið lítið eitt upp fyrir fátæktarmörk Félagsbústaða. Og nú vill Sjálfstæðisflokkurinn í borginni henda henni og barninu hennar í hendur okurleigufyrirtækja eins og Ölmu og annarra hákarla sem bíða soltnir eftir ráðstöfunarfé hennar. Leigan tvöfaldast, húsnæðisöryggið hverfur, hún þarf að flytja með barninu sínu í nýtt hverfi og hefur umtalsvert minna á milli handanna um hver mánaðamót. Nú tekur við fátækt, örbirgð og vergangur og barnið hennar komið í hóp 12.000 barna sem lifa við sárann efnislegan skort, geta hvorki leyft sér að stunda tómstundir, taka þátt í skólaferðalögum og mega lifa við það að flytjast milli íbúða og hverfa á 18-22 mánaða fresti eins og stór hluti leigjenda. Góðir lesendur. Við skulum ekki gleyma því að ein skýrasta mælistikan á samfélag er hvernig við komum fram við okkar fátækasta og mest berskjaldaða fólk. Munum líka að tekju- og fátækramörk Félagsbústaða eru undir lágmarkslaunum. Tveir fullorðnir einstaklingar sem leigja hjá Félagsbústöðum mega ekki vera með meira en 11 milljónir samanlagt í árslaun, það gera 458.000 kr á mánuði, en lægstu taxtar hjá VR eru 482.000 kr á mánuði. Er mannleg reisn eignalausra þyrnir í augum hátekju- og eignafólks? Hver bað eiginlega um þessa illsku gagnvart eignalausum? Höfundar eru fyrrverandi og núverandi formaður Leigjendasamtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Yngvi Ómar Sigrúnarson Guðmundur Hrafn Arngrímsson Mest lesið Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun