Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar 7. maí 2026 19:01 Laugardaginn 24. apríl sl. var plokkað í Urriðaholti á vegum íbúasamtakanna þar og vá hvað þetta var flottur og skemmtilegur dagur! Vel skipulagður og allt var til fyrirmyndar. Sama var upp á teningnum hjá Rótarý á Stóra plokk deginum 25. apríl. Flott framtak og áminning um að allir dagar ættu að vera plokkdagar. Við vorum minnt á að það er ekkert mál að taka með sér poka í göngu og hreinsa upp það rusl sem á vegi okkar verður. Skemmtilegt er að kynnast nærumhverfinu og taka til hendinni í leiðinni, kynnast fólkinu og hafa gaman saman. Samfylkingin í Garðabæ vill efla þann samfélagsanda á næsta kjörtímabili, þar sem íbúar taka höndum saman um að halda bænum okkar hreinum, fallegum og lifandi. Landið okkar Garðabær Við búum í einu fallegasta sveitarfélagi landsins. Náttúran í bæjarlandinu er einstök og nauðsynlegt er að vernda hana. Í Garðabæ er um fjórðungur lands friðlýstur eða nýtur hverfisverndar, samtals yfir 500 hektarar. Mikilvægt er að varðveita ósnortna náttúru í nærumhverfinu og vernda fleiri verðmæt svæði. Það mun áfram tryggja íbúum aðgang að óspilltri náttúru sem hefur verið sýnt fram á að auki lífsgæði og hamingju íbúa í þéttbýli. Samfylkingin mun sinna þessum verkefnum og leggur áherslu á að friðlýst og vernduð svæði fái þá umönnun sem þörf er á. Mikilvægt er að landvörður sé á svæðunum og fylgist með gróðri, fuglalífi og nýtingu þeirra. Í bæjarlandinu eru tvö falleg vötn, Urriðavatn og Vífilsstaðavatn, sem státa af fjölskrúðugu fuglalífi, en því miður hefur ágangur máfa og minka haft töluverð áhrif á að ungar komist á legg. Mikilvægt er að huga að þessu og fylgjast vel með þróun fuglalífs við vötnin og grípa til aðgerða og frekari rannsókna til að vernda það. Fuglalíf er góð vísbending um hvort lífríki sé í jafnvægi eða að eitthvað bjáti á. Dýjamýri við Urriðavatn er mikilvæg í lífríkinu og nauðsynlegt að hún þorni ekki upp vegna aukins trjágróðurs. Á Álftanesi er einnig ástæða til að huga að líf- og fuglaríki enda er Álftanes einstök náttúruperla og mikilvægt að sýna árvekni og sjá til þess að svæðið/hverfið sé sveitarfélaginu til sóma. Við í Samfylkingunni sjáum mörg tækifæri til nýtingar á svæðunum. Þar mætti koma upp fuglaskoðunarhúsi og útikennsluaðstöðu, svo eitthvað sé nefnt. Friðlýst svæði eru mörg í landi Garðabæjar og nauðsynlegt að halda áfram að friðlýsa svæði sem hafa náttúru- og menningarlegt gildi. Vakta þarf lífríkið samhliða uppbyggingu í stækkandi sveitarfélagi. Náttúran er einstök og verðmæti hennar mikil. Okkur í Samfylkingunni er það bæði ljúft og skylt að stuðla að og styðja að áfram verði unnið að friðlýsingu í landi Garðabæjar með varðveislu og nýtingu í huga. Græni trefillinn Græni trefillinn er sameiginlegt og samfellt útivistarsvæði við efri jaðar borgarbyggðar. Hann teygir sig frá Helgafelli í suðri að Esjuhlíðum í norðri og er ætlað að tengja saman sveitarfélögin. Á svæðinu er fjölbreytt aðstaða til útivistar, meðal annars fyrir hestamennsku og golf, auk einstakrar náttúru með hraunbreiðum, votlendi og fjölbreyttu lífríki. Trefillinn tengist jafnframt stærri útivistarsvæðum, svo sem fjalllendi Esjunnar, Bláfjallafólkvangi og Reykjanesfólkvangi. Áhersla er lögð á að vernda sérstætt landslag og lífríki svæðisins. Skógrækt á að vera stunduð í sátt við náttúrufar, bæði til að bæta útivistar skilyrði, auka skjól og draga úr jarðvegsfoki og svifryki. Græni stígurinn, samfelldur göngu- og hjólastígur, liggur eftir treflinum og tengir öll sveitarfélögin saman. Það væri mikill fengur í því að klára stíginn og stuðla þar með að öflugri útivist íbúa á svæðinu. Að lokum Sveitastjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi snúast um þjónustu. Hvaða þjónustu á bærinn okkar að veita og hvernig eigum við að forgangsraða fjármunum bæjarins? Við vitum öll að ekki er til peningur fyrir öllum verkefnum sem hugur stendur til að framkvæma og því þarf skýra forgangsröðun. Samfylkingin setur fólkið í bænum í fyrsta sæti. Það á að vera gott að búa í Garðabæ fyrir alla. Garðabær á að vera forystu sveitarfélag þar sem horft er til okkar sem framúrskarandi kost til búsetu. Við þurfum nýja forystu. Setjum X við S 16. maí næstkomandi. Höfundur skipar 9. sæti á lista Samfylkingarinnar í Garðabæ og er f.v. bæjarfulltrúi, matreiðslumeistari og menntunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Garðabær Samfylkingin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson skrifar Skoðun Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Nokkur orð um samkennd Ari Allansson skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum, skýrsla HMS Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Réttur barna til tvítyngis: íslenskt táknmál og íslenska Júlía Guðný Hreinsdóttir skrifar Skoðun Öruggt ferðasumar hefst með góðum brunavörnum Methúsalem Hilmarsson skrifar Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar Sjá meira
Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar
Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar
Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun