Eiginkona þjálfarans segir Burnley bera ábyrgð í andlátinu Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. maí 2026 07:01 Matt Beard féll fyrir eigin hendi á síðasta ári. Liverpool FC/Liverpool FC via Getty Images Eiginkona Matt Beard, fyrrum þjálfara kvennaliða Burnley og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, segir fyrrnefnda félagið eiga stóran þátt í andláti hans. Félagið hafi lagt hann í einelti sem leiddi til andlegra erfiðleika og á endanum sjálfsvígs. Beard var þjálfari Burnley í aðeins tvo mánuði en hann hætti störfum í ágúst árið 2025. Hann féll fyrir eigin hendi þann 20. september 2025, 47 ára að aldri. Í skýrslutöku í dag sagði eiginkona hans, Debbie, að Burnley hefði „lagt hann í einelti.“ Hún lýsti tíma hans hjá Burnley sem uppsprettu að mikilli vanlíðan sem varð til dauða hans. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. „Matt fór ekki frá Burnley til að taka við öðru starfi. Hann fór frá Burnley því hann var ekki hamingjusamur þar. Þau vildu í rauninni ekki leyfa honum að halda áfram. Þau lögðu hann í einelti. Hann var týpan sem sagði alltaf „Já, það er í lagi með mig“ og hefði aldrei viðurkennt neitt en maður gat séð þetta á honum,“ sagði Debbie Beard. Málið er nú til rannsóknar en óskað hefur verið eftir yfirlýsingum frá Burnley og Leicester, félaginu sem vildi ráða Beard þegar hann hætti hjá Burnley. Þá verður einnig óskað eftir vitnisburði frá umboðsmanni Beard og samtökum knattspyrnuþjálfara. Beard hóf þjálfaraferilinn hjá Millwall en er frægastur fyrir tíma sinn hjá Chelsea og Liverpool. Hann gerði Liverpool að Englandsmeisturum tvö ár í röð 2013 og 2014. Íslenska landsliðskonan Katrín Ómarsdóttir var í liðinu bæði árin og skoraði mark í 2-0 sigri gegn Bristol sem tryggði Liverpool Englandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni árið 2013. Árið 2021 sneri Beard svo aftur til Liverpool og kom liðinu aftur upp í úrvalsdeildina. Eftir andlát hans var Beard heiðraður og vígður inn í frægðarhöll ensku úrvalsdeildarinnar. Liverpool FC Enski boltinn Burnley FC Chelsea FC Mest lesið Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Fótbolti Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Íslenski boltinn Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas kom inn í fyrsta sigri Hearts Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Brynjólfur skoraði fyrsta mark Groningen á tímabilinu Lærisveinar Freys svöruðu með góðum sigri Hörð barátta tveggja Íslendingaliða um titilinn Tap í fyrsta leik tímabilsins hjá fyrirliðanum Stefáni Teiti Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Minning Jorge Messi heiðruð víða um heim Betur fór en á horfðist fyrir leik Íslendingaliðsins Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Sjá meira
Beard var þjálfari Burnley í aðeins tvo mánuði en hann hætti störfum í ágúst árið 2025. Hann féll fyrir eigin hendi þann 20. september 2025, 47 ára að aldri. Í skýrslutöku í dag sagði eiginkona hans, Debbie, að Burnley hefði „lagt hann í einelti.“ Hún lýsti tíma hans hjá Burnley sem uppsprettu að mikilli vanlíðan sem varð til dauða hans. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. „Matt fór ekki frá Burnley til að taka við öðru starfi. Hann fór frá Burnley því hann var ekki hamingjusamur þar. Þau vildu í rauninni ekki leyfa honum að halda áfram. Þau lögðu hann í einelti. Hann var týpan sem sagði alltaf „Já, það er í lagi með mig“ og hefði aldrei viðurkennt neitt en maður gat séð þetta á honum,“ sagði Debbie Beard. Málið er nú til rannsóknar en óskað hefur verið eftir yfirlýsingum frá Burnley og Leicester, félaginu sem vildi ráða Beard þegar hann hætti hjá Burnley. Þá verður einnig óskað eftir vitnisburði frá umboðsmanni Beard og samtökum knattspyrnuþjálfara. Beard hóf þjálfaraferilinn hjá Millwall en er frægastur fyrir tíma sinn hjá Chelsea og Liverpool. Hann gerði Liverpool að Englandsmeisturum tvö ár í röð 2013 og 2014. Íslenska landsliðskonan Katrín Ómarsdóttir var í liðinu bæði árin og skoraði mark í 2-0 sigri gegn Bristol sem tryggði Liverpool Englandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni árið 2013. Árið 2021 sneri Beard svo aftur til Liverpool og kom liðinu aftur upp í úrvalsdeildina. Eftir andlát hans var Beard heiðraður og vígður inn í frægðarhöll ensku úrvalsdeildarinnar.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Liverpool FC Enski boltinn Burnley FC Chelsea FC Mest lesið Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Fótbolti Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Íslenski boltinn Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas kom inn í fyrsta sigri Hearts Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Brynjólfur skoraði fyrsta mark Groningen á tímabilinu Lærisveinar Freys svöruðu með góðum sigri Hörð barátta tveggja Íslendingaliða um titilinn Tap í fyrsta leik tímabilsins hjá fyrirliðanum Stefáni Teiti Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Minning Jorge Messi heiðruð víða um heim Betur fór en á horfðist fyrir leik Íslendingaliðsins Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Sjá meira