Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga Aron Guðmundsson skrifar 8. maí 2026 22:37 Bragi Karl var keyptur til Njarðvíkur frá FH fyrir tímabilið Mynd: Njarðvík Njarðvíkingar unnu í kvöld sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Lengjudeildinni í fótbolta er liðið lagði Fylki að velli í Njarðvík 2-0. Þriðja umferð deildarinnar hófst í kvöld.
Njarðvík, sem margir telja að geti barist um toppsæti deildarinnar í ár, hafði ekki farið vel af stað í Lengjudeildinni og aðeins sótt eitt stig af sex mögulegum úr fyrstu tveimur leikjum sínum. Lærisveinar Heimis Guðjónssonar í Fylki urðu fyrir áfalli í fyrri hálfleik þegar að Birkir Eyþórsson fékk að líta sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt. Fylkismenn einum manni færri. Það dró til tíðinda skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks þegar að Bragi Karl Bjarkason kom Njarðvík yfir með með marki á 44.mínútu og stóðu leikar 1-0 í hálfleik. Það var svo á 68.mínútu sem Sigurjón Már Markússon tvöfaldaði forystu heimamanna og þar við sat. 2-0 sigur Njarðvíkinga staðreynd. Sá fyrsti á tímabilinu. Lærisveinar Davíðs Smára Lamude komnir í efri hluta deildarinnar með fjögur stig. Fylkir er í þriðja sæti með sex stig. Afturelding, líkt og Njarðvík, vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í kvöld gegn Leikni Reykjavík þegar liðin mættust á Leiknisvelli. Mörk frá Joacim Emil Godhel Holtan, Róberti Agnari Daðasyni og Bart Koolstra seint í seinni hálfleik innsigluðu 3-0 sigur Mosfellinga sem eru komnir með fjögur stig. Leiknir er einnig með fjögur stig. Þá gerðu ÍR og Grindavík 2-2 jafntefli þar sem að Lárus Orri Ólafsson skoraði dramatískt jöfnunarmark fyrir Grindvíkinga á 90.mínútu. ÍR er eftir leikinn með fjögur stig í efri hluta deildarinnar. Grindavík er með þrjú stig.
Lengjudeild karla UMF Njarðvík Fylkir Afturelding Leiknir Reykjavík ÍR Grindavík Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa Sport Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Fótbolti Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Íslenski boltinn Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Lukaku leitar sér að nýju liði Fótbolti Fleiri fréttir Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ Tveir erlendir leikmenn yfirgefa Keflavík Ekki sammála Lárusi þá og ekki núna: „Þetta er bara heimskulegt“ Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni Tekur skóna af hillunni til að hjálpa Þrótti Sjáðu kveðjumark Kjartans Kára fyrir FH og Keflavík klára KA á níu mínútum „Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Kjartan Kári á leiðinni í Víking Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ „Það er erfitt að eiga við okkur“ Uppgjörið: Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Grótta sótti þrjú stig á Ísafjörð og vandræði Vestra halda áfram Heldur brasið áfram á Brazell í Bestu deildinni? Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki „Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum Sjá meira