Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar 9. maí 2026 07:45 Mikil umræða hefur verið um leikskólamál og hvernig best sé að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskólavistar. Ég er þriggja barna móðir og þekki af eigin reynslu hversu erfitt þetta tímabil getur verið. Ég man vel eftir streitunni sem fylgdi því að reyna að finna lausn þegar fæðingarorlofi lauk. Kemst barnið mitt inn á leikskóla? Fæ ég pláss hjá dagforeldri? Á ég að taka mér leyfi frá vinnu og fá heimgreiðslur og missa réttindi mín? Þessar spurningar komu upp með hvert einasta barn. Ég er fegin að þetta tímabil sé að baki hjá mér, en spyr á sama tíma: Af hverju erum við enn að leggja þetta álag á ungar fjölskyldur? Það er löngu tímabært að stjórnvöld brúi bilið á milli fæðingarorlofs og leikskólavistar með lengingu fæðingarorlofs. Kópavogsmódelið - lausn sem fagfólkið mótaði Tekist hefur verið á um leikskólamálin þar sem mörg börn hafa verið á biðlista eftir leikskólavist. Á sama tíma hefur verið skortur á menntuðum leikskólakennurum og erfitt hefur verið að manna leikskólana. Vinnuvika leikskólastarfsfólks var stytt án þess að fjölga starfsfólki. Vistunartími barnanna hélst óbreyttur og var að jafnaði mun lengri en vinnutími starfsfólksins. Afleiðingin var sú að starfsfólkið þurfti að hlaupa hraðar og starfa undir miklu álagi. Eftir ákall leikskólastjórnenda í Kópavogi um úrbætur ákvað bæjarstjórn að innleiða Kópavogsmódelið. Í núverandi kosningabaráttu hefur Sjálfstæðisflokkurinn eignað sér módelið enda finnur starfsfólk gríðarlegan mun á starfsumhverfinu og er ánægt með breytingarnar. Það sem mér þykir hins vegar áhugavert er Kópavogsmódelið varð ekki til á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins heldur í samstarfi fagfólks leikskólanna og leikskólanefndar, sem Framsóknarflokkurinn leiddi á þeim tíma. Framsóknarflokkurinn hefur verið kaffærður af Sjálfstæðisflokknum og nú virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn einn standi við bakið á leikskólastarfsfólki bæjarins og taki sér heiðurinn af breytingunum. Bæjarstjóri stóð í vegi fyrir kjarasamningi kennara En spólum aðeins til baka. Þegar kjarabarátta kennara stóð sem hæst stóð núverandi bæjarstjóri í vegi fyrir því að samið yrði við okkur kennara. Þó að bæjarstjórinn hafi haldið því fram að samningaviðræður væru í höndum samninganefndar hef ég upplýsingar sem benda til annars. Þegar samningar náðust loks eftir langa og strembna samningalotu tók við önnur umræða. Ítrekað var talað um að sveitarfélagið þyrfti að skera niður vegna kjarasamninga kennara, þrátt fyrir að lengi hefði legið fyrir að launaleiðréttingar væru framundan. Kennarasamfélagið var mjög ósátt við þessa umræðu enda var stéttin ítrekað sett í hlutverk orsakavalds. Ég fékk sjálf nóg af þessari orðræðu og lét bæjarstjóra vita hvaða áhrif hún hefði á kennara bæjarins. Bæjarstjóri baðst afsökunar og sagðist ekki hafa áttað sig á því hvernig orðræðan kæmi við kennara, en umræðan hafði þegar haft áhrif. Ég hef að minnsta kosti ekki gleymt henni og veit að margir kennarar muna einnig eftir henni. Niðurstaðan varð sú að meirihluti bæjarstjórnar samþykkti 670 milljóna króna hagræðingaraðgerðir til að mæta launaleiðréttingu kennara. Í þeim fólst meðal annars lækkun á launum kjörinna fulltrúa bæjarstjórnar, sem bæjarstjóri síðan gleymdi að framkvæma þar til nýverið. Minnihlutinn fór einnig fram á lækkun á launum bæjarstjóra, en þeirri tillögu var hafnað. Með hverjum stendur Sjálfstæðisflokkurinn? Með kennurum þegar það hentar og pólitískur ávinningur er í boði, en annars ekki? En aftur að Kópavogsmódelinu. Foreldrum og starfsfólki stillt upp sem andstæðum fylkingum Aðeins um þriðjungur foreldra getur nýtt sér Kópavogsmódelið. Lausnin fólst meðal annars í hærri gjaldskrá umfram 30 stunda vistun til að hvetja foreldra til að stytta vistunartíma barna sinna. Í reynd þýðir það að margir foreldrar þurfa að reiða sig á sitt eigið bakland til að brúa bilið, sitt eigið ,,Kópavogsmódel”, sem oftast eru ömmur og afar. Sú leið stendur þó langt frá öllum til boða. Leikskólastjórnendur og starfsfólk hafa varið breytingarnar enda hafa þær dregið úr álagi og bætt starfsumhverfi. Leikskólastarfsfólk á ekki að vera sett í þá stöðu að þurfa að verja rétt sinn til bærilegs starfsumhverfis. Foreldrar vilja góða leikskóla fyrir börnin sín, en á sama tíma hefur óánægja verið með háa gjaldskrá, mismunun og skort á fyrirsjáanleika þar sem óljóst er hvaða leikskólar verða opnir á skráningardögum. Foreldrum og starfsfólki hefur verið stillt upp sem andstæðum fylkingum. Það þarf að finna lausnir sem mæta þörfum beggja hópa án þess að skerða starfsumhverfi leikskólastarfsfólks. Bætum þjónustuna og stöndum vörð um starfsumhverfið Við í Viðreisn stöndum með starfsfólki í leik- og grunnskólum, alltaf, en ekki einungis þegar það hentar. Við viljum standa vörð um gott starfsumhverfi í leikskólum Kópavogs en jafnframt vinna með fagfólki að lausnum sem mæta þörfum foreldra. Ef starfsfólki líður vel skilar það sér í betri líðan barna. Það þarf að auka fyrirsjáanleika á skráningardögum og tryggja að fleiri leikskólar en tveir til þrír séu opnir hverju sinni. Við viljum einnig að sanngjarnt gjald greiðist fyrir leikskóladvöl og að Kópavogur sé samkeppnishæfur við önnur sveitarfélög. Kópavogur á að vera aðlaðandi bæjarfélag til búsetu fyrir ungt fólk. Bærinn er ekki sterkt bæjarfélag án ungra fjölskyldna. Við þurfum að styðja starfsfólkið, bæta þjónustuna og byggja upp leikskólastarf sem virkar fyrir börn, foreldra og starfsfólk. Höfundur er skólastjóri Hörðuvallaskóla og situr í 4. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun