Umræða tengd afstöðu Ólafs Ragnars varðandi ESB – skoðum fleiri hliðar og framtíðina Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 12. maí 2026 06:17 Eftir umræður síðustu daga um Evrópusambandið hafa margir vísað í sjónarmið Ólafur Ragnar Grímsson um að Ísland hafi staðið sterkt utan ESB og að reynsla annarra ríkja sýni að smáríki þurfi ekki aðild til að ná árangri. Þar er ekki öll sagan sögð og valin „raundæmi“. Það er mikilvægt að horfa á fleiri hliðar og hugsa um framtíð komandi kynslóða. Skoðum líka hvaða tækifærum gæti Ísland verið að missa af? Þegar rætt er um Evrópusambandið er oft talað eins og Ísland sé of lítið til að hafa áhrif eða njóta ávinnings. Reynslan af nokkrum smáríkjum innan ESB bendir hins vegar til hins gagnstæða. Malta sýnir að smáríki geta nýtt ESB sér í hag Malta er eitt minnsta ríki Evrópu með um hálfa milljón íbúa og er með Evru sem gjaldmiðil og 2-4% fasta vexti af húsnæðislánum. Skv. upplýsingum netsins er Malta nú með mestan hagvöxt innan ESB, þrátt fyrir að hafa ekki sambærileg fiskimið og Ísland, hreina orku né þær náttúruauðlindir sem Ísland býr yfir. En Malta hefur nýtt aðild sína að ESB markvisst til að; efla þjónustu og tæknigeira, laða að erlenda fjárfesta og alþjóðleg fyrirtæki, styrkt samkeppnishæfni og atvinnu. Ef Malta getur byggt upp öflugt hagkerfi innan ESB með takmarkaðar auðlindir, af hverju ætti Ísland ekki að geta gert enn betur? Í samanburði við Möltu hefur Ísland; þróaðan fiskiðnað, hreina endurnýjanlega orku, sterka matvælaframleiðslu, tæknikunnáttu í sjávarútvegi og orkumálum, öflugan hugverkageira, hreint vatn og náttúruauðlindir sem verða sífellt verðmætari. Spurningin er því ekki hvort Ísland hafi eitthvað fram að færa, heldur hvort við séum að nýta stöðu okkar nægilega vel. Tollalaus viðskipti skipta meira máli fyrir smáríki Fyrir lítið útflutningshagkerfi skipta viðskiptahindranir miklu máli. Því minni sem þjóðin er, þeim mun mikilvægari er greiður aðgangur að stórum mörkuðum. Þetta á sérstaklega vel við Ísland. Full aðild að ESB myndi skapa enn greiðari aðgang að innri markaði með yfir 450 milljónum neytenda. Það gæti skipt miklu fyrir; sjávarútveg, hátækni, alþjóðlega nýsköpun, matvælaframleiðslu, græna orku og þekkingariðnað. Íslensk fyrirtæki eru þegar að keppa á þessum mörkuðum. Munurinn er sá að í dag erum við ekki virkir þátttakendur í umræðu og ákvarðanatöku, en þurfum engu að síður að fylgja stórum hluta regluverksins í gegnum EES samninginn. Ísland gæti orðið mun sterkari þátttakandi með fullri aðild Andstæðingar ESB tala stundum eins og aðild þýði að Ísland „hverfi inn í kerfið“. Reynslan af smáríkjum innan sambandsins bendir ekki til þess. Lúxemborg, Eistland. Malta og Írland hafa öll haft áhrif langt umfram stærð sína. Ísland hefur þegar sýnt að við getum haft áhrif á alþjóðavettvangi, t.d. tengt; sjávarútvegi, jafnréttismálum, orkumálum, friðar- og loftslagsmálum, björgunar- og öryggismálum á Norðurslóðum. Það er mjög dýrmætt fyrir sjálfstraust Íslendinga að geta gefið og fengið til baka í samvinnu mun fleiri tækifæri til að nýta okkar stöðu, þekkingu og sköpunarkraft. Umræðan þarf að snúast um framtíðina Það er rétt að Ísland hefur á margan hátt staðið sig vel utan ESB, þó enginn haldi því fram að íslenska krónan hafi staðið sig vel síðustu 100 árin. Við verðum því að fá raunverulegan samning til að geta metið öryggi og möguleika komandi kynslóða til næstu 100 ára. Hér á enn við úr gamalli auglýsingu „Þú tryggir ekki eftir á“. Heimurinn hefur breyst: samkeppni milli ríkja harðnar, öryggismál Evrópu hafa gjörbreyst, fjárfestingar og fyrirtæki leita stöðugleika, alþjóðleg fyrirtæki opna útibú þar sem regluverkið er þekkt, ungt fólk lifir við óvissu, allt of háa vexti og dýrt húsnæði, smá hagkerfi verða sífellt viðkvæmari fyrir sveiflum. Höfum umræðuna opna, heiðarlega og laus við hræðsluáróður hvoru megin sem við stöndum. Ég segi aðeins núna „Ég get ekki með góðri samvisku sagt já eða nei við mögulegum samningi sem ég hef ekki séð“ Ef horft til aldamótanna 1900 þá lifðum við af, einangruð, við mjög erfið lífsskilyrði og yfir 20% þjóðarinnar „flúðu“. Við eigum sem betur fer marga möguleika til framhaldsmenntun erlendis, en því miður eru ekki nægt tækifæri fyrir þetta vel menntaða fólk á Íslandi. Við verðum að skapa umhverfi með þekktum grunnreglum til að fjárfestar og útibúa alþjóðlegra fyrirtækja komi til Íslands, sbr. dæmin á Möltu. Við skulum vera stolt af þeirri ótrúlegu uppbyggingu og efnahagslegum bata sem Ísland hefur náð með góðri samvinnu við aðrar þjóðir og erum núna vel stæð þjóð. En spurningin er hvort Ísland geti lagt meira af mörkum til samvinnu, friðarmála og um leið bætt okkar samkeppnisstöðu til framtíðar. Ég segi „verum skynsöm og óhrædd við að sjá samninginn við ESB“. Höfundur er með MS í stjórnun og stefnumótun og er stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun