Börn og ungmenni í vanda geta ekki beðið Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar 12. maí 2026 13:40 Sem deildarstjóri í grunnskóla í Garðabæ hef ég á undanförnum árum séð stuðningsþörf barna og fjölskyldna aukast verulega án þess að úrræðum hafi fjölgað í sama takti. Þetta á við um börn og ungmenni með fatlanir, börn sem glíma við skólaforðun og þau sem þurfa stuðning barnaverndar eða félagsþjónustu. Garðabær hefur ekki verið í forystu við innleiðingu laga um farsæld barna, þótt vissulega hafi orðið jákvæð þróun á síðustu misserum. Nú er komið að því að stíga næstu skref af meiri festu og metnaði. Við þurfum skýra stefnu og raunverulega uppbyggingu í þjónustu við þau börn og þær fjölskyldur sem mest þurfa á stuðningi að halda. Í dag er stór hluti þyngstu þjónustunnar keyptur utan sveitarfélagsins. Slík útvistun er kostnaðarsöm og hefur of oft rofið mikilvæga samfellu í þjónustu þegar börn eru send milli kerfa og sveitarfélagið er ekki beinn aðili að viðkomandi þjónustu. Afleiðingarnar eru ekki aðeins félagslegar og tilfinningalegar fyrir börnin sjálf og fjölskyldur þeirra heldur einnig fjárhagslegar. Foreldrum þessara barna er hættara við að detta í skemmri eða lengri tíma út af vinnumarkaði vegna langvarandi álags og biðstöðu og mikill tími mannauðs sveitarfélagsins fer í að finna leiðir og lausnir með þessum viðkvæmu fjölskyldum til að plástra bilið. Mikilvægt er að við horfumst í augu við núverandi stöðu og förum af krafti í það að mikilvæga verkefni að byggja upp sterkari innviði hér í Garðabæ og/eða efla samstarf við nágrannasveitarfélögin þar sem það þjónar hagsmunum barna best. Með öflugri úrræðum getum við stytt biðtíma, tryggt samfellu í þjónustu og brugðist fyrr við þegar vandi kemur upp. Slíkur stuðningur getur skipt sköpum fyrir framtíð barna og ungmenna. Fyrir ungmenni og fólk með fatlanir þarf að þróa virkni- og vinnuúrræði sem taka mið af getu, styrkleikum og áhuga hvers einstaklings. Með samstarfi skóla, félagsþjónustu, félagsmiðstöðva og atvinnulífs getum við skapað fleiri tækifæri til þátttöku, sjálfstæðis og virkni í samfélaginu. Það er ekki aðeins mikilvægt fyrir einstaklinginn heldur samfélagið allt. Skólaforðun er önnur vaxandi áskorun sem við verðum að taka alvarlega. Þar þarf að styðja betur við skólana, tryggja markvissa eftirfylgd og hlusta á raddir barna, foreldra og fagfólks. Í mörgum tilfellum er skólaforðun fyrst og fremst heilbrigðisvandi og því þarf að grípa snemma inn í með réttum stuðningi á réttum stað áður en vandinn verður djúpstæður. Ég brenn fyrir málefnum barna og ungmenna því ég sé á hverjum degi hversu miklu máli það skiptir að samfélagið standi með fjölskyldum þegar á reynir. Ég vil að Garðabær verði leiðandi afl í því sem ég vil kalla velferðarsáttmála höfuðborgarsvæðisins. Sáttmáli sem skapar einingu um samfélag þar sem börn fá þjónustu nær sér, fyrr og byggða á þeirra raunverulegu þörfum. Það er hægt að gera betur. Með skýrri sýn, ábyrgri fjármálastjórn og skýrri forgangsröðun getum við byggt upp þjónustu sem eykur lífsgæði barna og fjölskyldna og nýtir um leið sameiginlegt fjármagn skynsamlegar. Þess vegna býð ég mig fram í bæjarmálunum og óska einlæg eftir þínum stuðningi á laugardaginn. Kjósið Framsókn og setjið X við B. Höfundur er lennari og deildarstjóri og skipar 7. sæti á lista Framsóknar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Garðabær Framsóknarflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun