Ummæli sveitarstjóra sem styðst ekki við staðreyndir Ragna Ívarsdóttir skrifar 12. maí 2026 16:31 Í viðtali í fréttum á Bylgjunni í gær hélt sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, Fjóla St. Kristinsdóttir, því fram að gífurleg aukning hefði orðið á íbúafjölda hreppsins með ótilgreint lögheimili og gaf í skyn að skráningar tengdust tilraunum til að hafa áhrif á komandi sveitarstjórnarkosningar. Þegar opinber gögn eru hins vegar skoðuð blasir önnur mynd við. Í stað þess að styðjast við staðreyndir lét sveitarstjóri þessi ummæli falla: „Svo eru auðvitað framundan kosningar og það er hópur af fólki sem býr í sínum sumarhúsum og hefur boðið fram í fyrsta skipti sérlista. Það fylgir því framboði fólk sem er að skrá sig ótilgreint í hús.“ Með þessum orðum er dregin upp afar einhliða mynd af þróun íbúafjölda í hreppnum og gefið í skyn að fjölgun íbúa með ótilgreint lögheimili sé fyrst og fremst pólitískt drifin. Opinber gögn segja hinsvegar allt annað. Ég vísa í opinber gögn máli mínu til stuðnings. Hér sést að fólksfjölgun í hópi þeirra með tilgreint lögheimili frá 1. desember 2024 til 1. apríl 2026 er 117 íbúar, á móti 45 í hópi þeirra með ótilgreint lögheimili. Ótilgreind lögheimilisskráning var fyrst heimiluð árið 2019 og því eðlilegt að frá þeim tíma hafi fjölgað töluvert í þeim hópi. Sömu þróun má sjá í sveitarfélögunum í kringum Grímsnes- og Grafningshrepp. Fyrirspurn á Alþingi Á 157. löggjafarþingi 2025–2026 barst dómsmálaráðherra eftirfarandi fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni þingmanni: „Hversu margir einstaklingar hafa verið skráðir til lögheimilis í sveitarfélagi án tilgreinds heimilisfangs, flokkað eftir sveitarfélögum, síðustu tíu ár?“ Í svari dómsmálaráðherra var birt tafla sem byggðist á upplýsingum sem Þjóðskrá Íslands vann með vélrænni talningu. Þar eru birtar upplýsingar um fjölda einstaklinga sem voru skráðir með ótilgreint lögheimili þann 1. desember ár hvert. Þar má sjá tölurnar svart á hvítu fyrir Grímsnes- og Grafningshrepp: desember 2021: 34 íbúar með ótilgreint lögheimili desember 2022: 48 íbúar með ótilgreint lögheimili desember 2023: 75 íbúar með ótilgreint lögheimili desember 2024: 103 íbúar með ótilgreint lögheimili desember 2025: 140 íbúar með ótilgreint lögheimili Í dag má áætla að íbúar yngri en 18 ára með ótilgreint lögheimili séu um tíu. Hins vegar kom eitt atriði réttilega fram, hjá sveitarstjóra, í viðtalinu. Einstaklingar með ótilgreint lögheimili á kjörskrá eru 132 íbúar. Skilyrt skráning? Mikilvæg staðreynd kom fram í svari dómsmálaráðherra til Vilhjálms Árnasonar, sem virðist hafa gleymst í umræðunni: „... ósk einstaklinga, sem eru búsettir í húsnæði sem ekki er heimilt að skrá lögheimili í, um að þeir verði skráðir með ótilgreint lögheimili í sveitarfélagi þar sem búsetan er. Nauðsynlegt er að staðfesting á búsetu sé lögð fram til Þjóðskrár Íslands svo hægt sé að samþykkja slíka beiðni. Í slíkum tilvikum er algengast að um búsetu í atvinnuhúsnæði eða frístundabyggð sé að ræða en einstaklingar án húsnæðis falla einnig undir þennan flokk.“ Þarna kemur skýrt fram að þetta er ekki einföld breyting á skráningu sem hver sem er getur framkvæmt án eftirlits. Sá sem kýs að færa lögheimili sitt í ótilgreint lögheimili þarf að sýna fram á raunverulega búsetu og leggja fram staðfestingu til Þjóðskrár Íslands svo beiðnin verði samþykkt. Leiðbeiningar um þær kröfur eru aðgengilegar á heimasíðu Þjóðskrár. Enn fremur kemur fram í sama svari að sambærileg fjölgun íbúa með ótilgreint lögheimili hefur átt sér stað í fleiri sveitarfélögum í kringum Grímsnes- og Grafningshrepp. Þróunin er því ekki einstök fyrir hreppinn né sjálfkrafa vísbending um skipulagða „gerviskráningu“ í tengslum við kosningar. Vísvitandi tilraun til að skekkja tölur Ég skil hins vegar ekki hvaða ómöguleika sveitarstjóri telur þetta skapa. Við búum hér með lögheimili, greiðum til samfélagsins eins og aðrir íbúar, höfum kosningarétt og höfum ákveðið að láta okkur sveitarfélagið varða. Það er einnig ástæða til að skoða sérstaklega þessi orð sveitarstjóra: „Það er auðvitað mjög alvarlegt fyrir okkur ef sú punktstaða er orðin ákveðið há og okkar kostnaðarhlutfall hækkar sem því nemur, svo skrá sig allir út og þá eru færri eftir til að standa undir þeim kostnaði. Það er ekki gott fyrir neinn og eitthvað sem okkur finnst auðvitað grafalvarlegt.“ Þessi orð kalla á skýrari útskýringar. Hvernig er verið að meta þann kostnað sem sveitarfélagið telur að fylgi íbúum með ótilgreint lögheimili? Og á hvaða forsendum er gefið í skyn að fólk sé að misnota kerfið eða skrá sig í sveitarfélagið af annarlegum ástæðum? Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að kjörnir fulltrúar og stjórnendur sveitarfélaga byggi opinber ummæli sín á staðreyndum. Þegar talað er um íbúa sveitarfélagsins með þeim hætti sem hér hefur verið gert skapast hætta á tortryggni og sundrung í samfélaginu. Við sem höfum kosið að eiga lögheimili í Grímsnes- og Grafningshreppi eigum ekki að þurfa að sæta því að dregið sé í efa hvort við tilheyrum samfélaginu eða hvort þátttaka okkar í lýðræðinu sé lögmæt. Ég fagna því að búa í samfélagi sem vex og þróast. Þess vegna er sérstaklega miður að sjá sveitarstjóra velja að ræða þennan hóp íbúa með þeim hætti sem gert var í viðtalinu. Umræðan á að byggjast á staðreyndum og vandaðri umræðu, ekki getgátum og dylgjum.Höfundur er íbúi í Grímsnes- og Grafningshreppi og skipar 2. sætið á Ö-listanum í sömu sveit. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun