Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar 13. maí 2026 10:47 Eldra fólk og hagsmunasamtök þeirra hafa stigið fram í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og kallað eftir umræðu um hvað stjórnmálaflokkar vilja gera fyrir sístækkandi hóp eldra fólks í borginni. Borgarlífið snýst ekki bara um skólastarf, snemmtæk inngrip og rekstur borgarinnar. Þriðjungur kjósenda er eldra fólk, hópur sem mætir á kjörstað og tekur afstöðu enda kjörsókn þessa hóps mun meiri og betri en þeirra sem yngri eru. Hvaða þjónusta er í borginni fyrir þennan mikilvæga hóp? Hvers vegna er hún svona ósýnileg? Er Reykjavíkurborg borg fyrir eldra fólk? Samvera, sund og heilsuefling í hverju hverfi Í borginni er fjölbreytt þjónusta fyrir fjölbreyttan hóp eldra fólks, fólk sem er á breiðu aldursbili sem aftur kallar á ólíka nálgun á þjónustu. Við erum að tala um heilsuhraust eldra fólk, hóp sem er í þörf fyrir stuðning og svo þau sem eru orðin hrum. Þessi þjónusta spannar allt frá hreyfingu og heilsurækt yfir þátttöku félagslífs til markvissrar heimaþjónustu fyrir þá sem þurfa meiri stuðning. Sameiginlegt markmið er alltaf skýrt: Að gera fólki kleift að búa sem lengst heima við sem bestar aðstæður. Fyrir heilsuhraust eldra fólk stendur til boða fjölbreytt framboð íþrótta- og tómstundastarfs víðsvegar um borgina. Íþróttafélög í öllum hverfum bjóða upp á leikfimi fyrir 60 ára og eldri þar sem lögð er áhersla á þol, styrk, jafnvægi og liðleika, en einnig á félagslega samveru. Slíkt starf fer fram meðal annars hjá Ármanni, KR, Fjölni, Fram, Fylki, ÍR, Víkingi, Val og Þrótti. Samhliða öflugu starfi innan íþróttafélaga í hverfum borgarinnar er boðið upp á sundleikfimi í sex sundlaugum borgarinnar 2-4 sinnum í viku. Sundlaugamenning í borginni er einstök, hefur verið skráð á heimsminjaskrá UNESCO. Sundlaugar eru almenningsrými, almenningsgæði, þar sem allar kynslóðir, fólk af öllum gerðum og stærðum, kemur saman til að synda, hreyfa sig, spjalla við félaga eða ókunnuga, njóta samfélags eða einveru umlukið vatni. Sundlaugamenning styður þess vegna við líkamlega, andlega og félagslega heilsu og sundleikfimin er frábær viðbót við aðra heilsueflingu. Menning, félagsstarf og blessuð blómaborgin Menningin er ekki bara í lauginni heldur er Reykjavík menningarborg. Þátttaka í ríku menningarlífi er mikilvægur hluti af þjónustu borgarinnar en Menningarkort Reykjavíkur veitir eldri fólki aðgang að söfnum og viðburðum á sérkjörum. Bókasöfn borgarinnar bjóða upp á fjölbreytta þjónustu, þar á meðal heimsendingu bóka fyrir þau sem ekki eiga heimangengt. Dagskrá félagsmiðstöðvanna er fjölbreytt og flest fólk ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Vinnustofur, listasmiðjur, klúbbastarf, spilamennska, skoðunarferðir, jóga, dans og leikfimi eru örfá dæmi um það sem er í boði í hverri viku. Lífsgæðin felast oft í hversdagsleikanum og tækifærum til fjölbreyttrar þjónustu í sínu nærumhverfi. Þau felast líka í tækifærum til að njóta útivistar allt árið um kring á mörgum fjölmörgu gönguleiðum, hjólastígum og almennum útivistarsvæðum víðsvegar um borgina – sem víða hafa verið fegruð með blómaskreytingum sem ég veit að gönguhópar elta sumir hverjir uppi. Reykjavíkurborg leiðandi í þjónustu Fyrir þau sem þurfa stuðning er heimaþjónusta Reykjavíkurborgar veigamikill hlekkur í þjónustu með það markmiði markmið styrkja einstaklinga til sjálfstæðrar búsetu, bæta lífsgæði þeirra og styðja aðstandendur. Flestir vilja búa sem lengst heima þrátt fyrir veikindi eða skertra færni.Um 80% þeirra sem fá heimaþjónustu er eldra fólk og skiptist heimaþjónustan í heimahjúkrun og heimastuðning. Heimahjúkrun er fyrir fólk sem þarf heilbrigðisþjónustu í heimahúsi en heimastuðningur felur í sér aðstoð við daglegar athafnir ásamt félagslegum stuðningi vegna veikinda eða endurhæfingar. Þjónustan er einstaklingsmiðuð og byggir á mati á þörfum hvers og eins, þar sem tekið er mið af heildar aðstæðum, færni og félagslegri stöðu. Málstjóri léttir umönnunarbyrði og styrkir velferð Samfylkingin vill bæta þjónustu við eldra fólk og aðstandendur þeirra með að endurhugsa þjónustu við eldra fólk í Reykjavík og bjóða upp á málstjóra þegar þverfagleg þjónustuþörf vex. Með skýrari verkaskiptingu og samhæfingu má létta umönnunarbyrði þeirra sem oft bera mikla ábyrgð samhliða opinberri þjónustu en hann samræmir þjónustu milli aðila þegar þjónustuþörf vex, tryggir að þarfir einstaklings séu metnar heildstætt, er tengiliður fyrir notanda og aðstandendur og dregur úr álagi og umönnunarbyrði á fjölskyldur og aðstandendur. Samfylkingin vill ekki bara styrkja velferð eldra fólks heldur líka aðstandendur með málstjóra, tryggjum áframhaldandi farsæld eldra fólks með því að setja X-við S 16. maí. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og skipar 10. sæti á lista flokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sara Björg Sigurðardóttir Mest lesið Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun