Arnar velur tvo landsliðshópa: Viktor Bjarki fær kallið Aron Guðmundsson skrifar 13. maí 2026 13:02 Viktor Bjarki gæti leikið sinn fyrsta A-landsleik gegn Japan Vísir/Getty Búið er að opinbera landsliðshópa Íslands sem mæta Japan og heimsmeisturum Argentínu í tveimur æfingarleikjum um mánaðarmótin.
Leikirnir eru liður í undirbúningi bæði Japan og Argentínu fyrir komandi heimsmeistaramóti í fótbolta sem hefst í Bandaríkjunum Mexíkó og Kanada í næsta mánuði. Leikurinn gegn Japan er utan landsliðsglugga og því er um tvo hópa að ræða fyrir leikina tvo. Þá má sjá svo sitt í hvoru lagi neðst í fréttinni. Landsliðshópar Íslands: Margt áhugavert er í hópunum tveimur. Viktor Bjarki Daðason, framherji FC Kaupmannahafnar fær kallið í hópnum sem mætir Japan og gæti spilað sinn fyrsta A-landsleik en einnig í hópnum er Ögmundur Kristinsson sem hefur lítið sem ekkert spilað upp á síðkastið og er á mála hjá Val en ekki í plönum Hermanns Hreiðarssonar. Þrír leikmenn gætu spilað sinn fyrsta A-landsleik í verkefninu. Téður Viktor Bjarki, Stefán Ingi Sigurðarsson, sóknarmaður Go Ahead Eagles og Benoný Breki Andrésson sóknarmaður Stockport County. Ísland mætir Japan í Tókýó á MUFG leikvanginum þann 31.maí næstkomandi áður en leið liðsins heldur til Bandaríkjanna þar sem að ríkjandi heimsmeistarar Argentínu bíða okkar manna þann 9.júní í Alabama. Um er að ræða síðasta leik heimsmeistaranna áður en titilvörn þeirra á HM hefst. Argentína mun spila í J-riðli á HM með Alsír, Austurríki og Jórdaníu. Japan er í F-riðli með Hollandi, Túnis og Svíþjóð. Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, situr fyrir svörum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli og tekur við spurningum varðandi hópinn og verkefnið. Beint streymi frá fundinum, sem hefst klukkan korter yfir eitt, má finna í fréttinni hér fyrir neðan: Hópurinn gegn Japan: Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur Ögmundur Kristinsson - Valur - 19 leikir Alfons Sampsted - Go Ahead Eagles - 23 leikir Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F.C. - 66 leikir, 4 mörk Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark Willum Þór Willumsson - NEC Nijmegen - 18 leikir Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 12 leikir Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa - 108 leikir, 5 mörk Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 9 leikir, 1 mark Stefán Ingi Sigurðarson - Go Ahead Eagles Viktor Bjarki Daðason - FC Köbenhavn Benoný Breki Andrésson - Stockport County F.C. Hópurinn gegn Argentínu: Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 14 leikir Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 3 leikir Guðlaugur Victor Pálsson - Horsens - 57 leikir, 5 mörk Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa - 12 leikir Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 30 leikir, 3 mörk Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 36 leikir, 1 mark Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 43 leikir, 6 mörk Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R. - 85 leikir, 28 mörk Kristall Máni Ingason - SK Brann - 8 leikir Arnór Sigurðsson - Malmö FF - 35 leikir, 2 mörk Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk Jón Dagur Þorsteinsson - SK Brann - 54 leikir, 6 mörk Albert Guðmundsson - ACF Fiorentina - 46 leikir, 14 mörk Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 17 leikir, 9 mörk Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF - 5 leikir
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Fótbolti Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Fótbolti Fleiri fréttir Rooney vill að Mainoo byrji hjá Englandi frekar en Anderson Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Maður dagsins á HM: Hetja Mexíkó á HM sem fæddist í Kólumbíu Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fjögurra áratuga bið á enda hjá Mexíkóum Ólýsanleg sorg fyrirliðans Verður áfram í Þýskalandi Koeman hættir með Holland Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Haaland hetjan og Norðmenn mæta Brössum Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Dansaði gleðidans eftir að Íran datt úr leik Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Undir rannsókn fyrir nauðgun á miðju heimsmeistaramóti Særingalæknirinn frá Gana beinir göldrum sínum að Messi og félögum Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Maður dagsins á HM: Fagnaði sigri á móti fyrirmyndinni Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjáðu Atla afgreiða Skagamenn og færa Framara nær KR Allir Paragvæar fá frí í dag til að fagna Sjá meira