„Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Sindri Sverrisson skrifar 14. maí 2026 11:32 Tómas Eiríksson Hjaltested er stigameistari síðasta árs. vísir/Anton Tómas Eiríksson Hjaltested hefur keppni á GSÍ-mótaröðinni í golfi á morgun sem ríkjandi stigameistari, nýútskrifaður úr háskóla á Flórída og spenntur fyrir komandi tímum.
Tómas útskrifaðist á dögunum úr viðskiptum og bókfærslu frá Jacksonville-háskólanum en hefur samhliða náminu vaxið og dafnað sem kylfingur. Klippa: Tómas klár í golfsumarið „Þetta er mjög gott tækifæri fyrir alla sem geta farið. Skemmtileg fjögur ár og ég myndi alltaf mæla með þessu. Maður lærir að búa einn og bætir ofan í það að spila golf allan ársins hring, sem breytir lífinu fyrir golfara frá Íslandi. Þetta er búið núna en það koma aðrir hlutir í staðinn og það er spennandi tími framundan,“ sagði Tómas á kynningarfundi GSÍ í vikunni. Hann tekur undir að því fylgi vissulega áskoranir að fara út til Bandaríkjanna en hvetur alla til að nýta slíkt tækifæri: „Maður fer ungur og ekki alveg tilbúinn í þetta fyrst. Fyrsta árið er erfitt fyrir flesta. En svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra, bæði í lífinu og náttúrulega í golfinu,“ sagði Tómas. Hann á fyrir höndum í sumar meðal annars Opna breska áhugamannamótið, Evrópumót með landsliðinu og svo taka við úrtökumót fyrir Evrópumótaröðina í haust. Hér heima á Tómas svo titil að verja sem stigameistari og byrjar á Reykjanesmótinu nú um helgina. „Það væri mjög gaman að vinna [GSÍ-mótaröðina] tvö ár í röð og vonandi þá að vinna líka fleiri mót á mótaröðinni. Ég náði ekki að vinna neitt mót í fyrra en sýndi mjög gott jafnvægi og endaði þrisvar í 2. sæti og einu sinni í 3. sæti. Vonandi rúllar maður þessu yfir línuna í ár og það væri geðveikt aukalega að ná öðru Íslandsmótinu líka en við sjáum bara hvað gerist.“
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira