„Við erum alltaf að gefa í“ Sindri Sverrisson skrifar 15. maí 2026 12:03 Ólafur Björn Loftsson er bjartsýnn fyrir komandi misseri hjá íslenskum kylfingum. vísir/Anton Íslenska golfsumarið hófst formlega í dag með Reykjanesmótinu, fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar, og framundan eru spennandi mánuðir hjá íslenskum áhuga- og atvinnukylfingum sem sjaldan hafa myndað eins breiða sveit.
Ólafur Björn Loftsson, landsliðsþjálfari og afreksstjóri GSÍ, segir mikinn meðbyr með golfhreyfingunni í ár og spennandi sumar að hefjast. Sjö mót eru á GSÍ-mótaröðinni hér heima og þar er hápunkturinn að sjálfsögðu sjálft Íslandsmótið á Korpúlfsstöðum í ágúst. „Það verður hart barist í sumar. Svo er nóg um að vera hjá okkar kylfingum erlendis – okkar fremstu kylfingar á sterkustu áhugamannamótum heims – og svo höfum við sjaldan verið með eins breiðan hóp atvinnukylfinga að spila úti um alla Evrópu í sumar,“ segir Ólafur Björn sem ræddi við Sýn á kynningarfundi GSÍ í vikunni. Hann verður með augun víða í sumar enda margir kylfingar að gera spennandi hluti: „Það er mikill meðbyr með golfhreyfingunni í ár, margt jákvætt að gerast. Dagbjartur [Sigurbrandsson] var að komast í lokaúrtökumótið fyrir US Open svo þeir Gunnlaugur Árni [Sveinsson] verða þar annað árið í röð. Gunnlaugur Árni náði hæst í 8. sæti á heimslista áhugamanna og er að spila á mjög virtum mótum. Var valinn í Arnold Palmer Cup, sem er sterkasta áhugamannamót heims, annað árið í röð og mun taka þátt í öllum þessum stærstu verkefnum. Það verður mikill spenningur að fylgjast með og styðja okkar flotta afreksfólk,“ sagði Ólafur. Styttist í næsta inn á risamót Þrír íslenskir kylfingar, þau Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Valdís Þóra Jónsdóttir og Haraldur Franklín Magnús, hafa afrekað það að spila á risamóti. Telur Ólafur að það bætist brátt í þann hóp? „Það styttist í það. Við erum á mjög góðri leið og alla vega að taka þátt. Hulda Clara [Gestsdóttir] spreytti sig í vikunni og við leggjum mikið á okkur til að koma kylfingunum okkar á stærsta sviðið, þar með talið á risamótin,“ sagði Ólafur. Allt kapp er lagt á að fremstu kylfingar landsins geti lagt allt í sölurnar til að ná árangri: „Stuðningurinn er alltaf að aukast. Þetta hefur verið heilsárssport í svolítinn tíma en við erum alltaf að reyna að leggja meira á okkur til að styðja við krakkana. Til dæmis varðandi landsliðshópinn þá voru farnar þrjár tíu daga ferðir í vetur [til Portúgals og Spánar]. Við erum alltaf að gefa í. Svo eru okkar bestu kylfingar að fara til Bandaríkjanna í háskólagolfið, og spila þar yfir allt árið á stærsta sviðinu í áhugamennskunni. Við erum alltaf að taka skref í rétta átt,“ segir Ólafur. Fremstu kylfingar landsins hafa auk þess verið að komast inn í sterk háskólalið í Bandaríkjunum og getað sinnt sinni íþrótt þar eins og atvinnumenn: „Þetta er langbesta leiðin fyrir okkur til að feta. Við leggjum því áherslu á að undirbúa okkar kylfinga sem best fyrir háskólagolfið og í gegnum þetta erfiða ferli við að komast út í skóla, því ef við náum að koma krökkunum í stærstu skólana þá aukast líkur þeirra töluvert á að komast á PGA- og LPGA-mótaröðina, sem er okkar markmið.“ Klippa: Mikill meðbyr með golfinu að mati Ólafs Björns Loftssonar
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira