Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir og Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifa 13. maí 2026 19:41 Einungis 127 manns voru með samning um NPA, notendastýrða persónulega aðstoð, á síðasta ári. Lögin um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir gerðu þó ráð fyrir allt að 172 samningum strax árið 2022. Enginn íbúi Austurlands nýtur NPA-þjónustu. Þjónusta sem veitir fólki sjálfstæði NPA hefur sannað sig sem það þjónustuform sem langsamlega best tryggir sjálfstæði og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu okkar. Hugmyndafræðin byggir á því að einstaklingurinn sjálfur hafi fulla stjórn á eigin aðstoð og geti því mótað líf sitt á sínum eigin forsendum; sinnt daglegu lífi, fjölskyldu og vinum, tómstundum, námi og atvinnu. Fatlað fólk velur sér aðstoðarfólk, ákveður hvaða verkefnum það sinnir, hvar og hvenær aðstoðin er veitt og hvernig hún er framkvæmd. Innleiðing NPA var stórt framfaraskref fyrir fatlað fólk. Þjónustan hefur aukið sjálfsákvörðun, frelsi og þátttöku þeirra sem hennar njóta til muna, bætt lífsgæði þeirra og stuðlað að betri andlegri og líkamlegri líðan. Rétturinn til NPA hefur verið lögbundinn síðan lögin um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir tóku gildi 2018. Þá er NPA lykilúrræði til að tryggja rétt fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs, sem er grunnstefið í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Samningurinn fékk loksins lagagildi hér á landi þann 3. desember 2025. Langt í að sveitarfélögin uppfylli markmið laganna Þrátt fyrir þetta voru bara 127 einstaklingar með NPA-samning árið 2025. Lögin settu markið mun hærra; í þeim var stefnt á allt að 150 samninga árið 2021 og 172 árið 2022. Ríkið fjármagnar 25% kostnaðar við þjónustuna, en sveitarfélögin 75%. Afskaplega erfitt hefur reynst að fá sveitarfélögin til að samþykkja og fjármagna fleiri NPA-samninga. Deilur hafa staðið milli ríkis og sveitarfélaga um skiptingu kostnaðar, en það er hins vegar algjörlega ótækt að ósætti um fjármögnun komi í veg fyrir að fatlað fólk fái þá þjónustu sem það á rétt á. Við viljum því hvetja ríki og sveitarfélög til að sammælast um framtíðarlausn á fjármögnun NPA sem tryggir að rétturinn verði raunhæfur, óháð búsetu. Við vitum að fjöldi fólks um land allt hefur sóst eftir notendastýrðri persónulegri aðstoð. Fjöldinn er hins vegar óljós, þar sem nær engin opinber gögn eru til um raunverulega þörf og eftirspurn eftir NPA. Hvorki hjá ríki né sveitarfélögum. Úr þessu þarf að bæta hið fyrsta. Er ekkert fatlað fólk fyrir austan? Það vekur athygli þegar tölurnar yfir fjölda NPA-samninga eru skoðaðar, að enginn einstaklingur á öllu Austurlandi nýtur þjónustunnar. Tveir Þingeyingar eru með NPA-samning, en höldum við áfram hringveginn austur fyrir land náum við allt til Bergrisans, byggðasamlags sveitarfélaga á Suðurlandi, áður en við finnum næsta einstakling með NPA. Spurningin er því hvort það sé yfirleitt eitthvað fatlað fólk fyrir austan? Í sveitarfélögum eins og Múlaþingi, Fjarðabyggð, Fljótsdalshreppi og Vopnafjarðarhreppi. Og því til viðbótar í Sveitarfélaginu Hornafirði, sem reyndar telst til Suðurlands. Á svæði þar sem búa tæplega 14.000 manns. Jú, það er víst enginn vafi á því. Fatlað fólk býr um land allt, en við eigum greinilega ekki öll kost á NPA-þjónustu þrátt fyrir ótvíræða kosti hennar. Beingreiðslusamningar og gervi-verktaka í stað NPA Ein leið sveitarfélaga til að komast hjá því að gera NPA-samninga er að bjóða í staðinn beingreiðslu- eða notendasamninga. Slíkir samningar eru ekki samræmt réttindaúrræði á landsvísu heldur ráðast að verulegu leyti af reglum hvers sveitarfélags. Sum sveitarfélög setja tímamörk, önnur miða við aðrar útfærslur og greiðslufyrirkomulagið er breytilegt eftir búsetu. Þannig getur réttur fatlaðs fólks í reynd ráðist af póstnúmeri. Vandinn er þó ekki aðeins ósamræmið. Í slíkum samningum er einstaklingnum ætlað að ráða fólk, skipuleggja vaktir, sjá um launagreiðslur, skattskil, bókhald, veikindi, forföll, samskipti og alla daglega stjórnun aðstoðarinnar, án þess að fjármagn fylgi endilega með til umsýslu og reksturs. Það er bæði ósanngjarnt og óraunhæft. Sveitarfélög geta ekki kallað þetta sjálfstæði ef kerfið gerir ráð fyrir að fatlað fólk sinni atvinnurekendaábyrgð, starfsmannahaldi og bókhaldi launalaust, án raunhæfs stuðnings og án fjármögnunar fyrir umsýslu. Ekki er heldur boðlegt að ýta fólki út í ótryggt gervi-verktakafyrirkomulag þegar aðstoðarfólk vinnur í raun undir verkstjórn viðkomandi. Persónuleg aðstoð er ekki tilfallandi verk sem verktaki tekur að sér á eigin ábyrgð; hún byggir á traustu vinnusambandi, skýrri verkstjórn, mannlegu trausti og réttindum aðstoðarfólks. NPA leysir þetta með skýrari hætti. Þar er gert ráð fyrir umsýslu, fræðslu, stuðningi, launagreiðslum, starfsmannahaldi og réttindum aðstoðarfólks. Beingreiðslusamningar geta því ekki orðið ódýr staðgengill fyrir NPA. Óskýr ábyrgð má ekki skerða réttinn til NPA NPA-samningar eru enn allt of fáir og dreifast mjög ójafnt um landið. Það eitt og sér sýnir að rétturinn til sjálfstæðs lífs er ekki tryggður með sambærilegum hætti óháð búsetu. Jafnframt þarf að tryggja að NPA sé fjármagnað og skilgreint á réttum forsendum. Sumir NPA-samningar eru vissulega umfangsmiklir, enda þarf fatlað fólk mjög ólíka og misjafna aðstoð til að geta lifað sjálfstæðu lífi. Það á ekki að vekja tortryggni gagnvart fötluðu fólki. Þvert á móti sýnir það að sjálfstætt líf krefst stundum mikillar, samfelldrar og vel skipulagðrar aðstoðar. En það má ekki gerast að NPA verði notað til að fjármagna þjónustu sem önnur kerfi eiga að bera ábyrgð á. Ef heilbrigðisþjónusta, sérhæfð meðferð eða önnur lögbundin þjónusta er færð inn í NPA án skýrrar ábyrgðar og fjármögnunar, þá skekkir það bæði myndina af raunverulegum kostnaði við NPA og þrengir að möguleikum fleiri til að fá þjónustuna. Lausnin er ekki að draga úr rétti fólks með mikla aðstoðarþörf. Lausnin er að ríki og sveitarfélög skilgreini ábyrgð sína skýrt, fjármagni hvert þjónustukerfi á réttum forsendum og tryggi að NPA standi undir sínu hlutverki: að gera fötluðu fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi, stjórna eigin aðstoð og taka fullan þátt í samfélaginu. Við hvetjum því ríki og sveitarfélög til að setja fram skýra og tímasetta áætlun um fjölgun NPA-samninga, tryggja jafnan aðgang um land allt og hætta að láta óskýra ábyrgð milli kerfa standa í vegi fyrir mannréttindum fatlaðs fólks. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðraRúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður stjórnar NPA miðstöðvarinnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Þuríður Harpa Sigurðardóttir Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun