„Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ Sindri Sverrisson skrifar 15. maí 2026 22:45 Perla Sól Sigurbrandsdóttir er klár í sumarið. vísir/Anton „Ég er mjög spennt fyrir sumrinu. Fimm mót á dagskrá heima og svo þrjú til fjögur erlendis, svo það verður nóg að gera í sumar,“ segir kylfingurinn Perla Sól Sigurbrandsdóttir brosmild. Hún er sérstaklega spennt fyrir að spila um Íslandsmeistaratitil á sínum heimavelli.
Perla byrjar tímabilið hér heima á Reykjanesmótinu og er efst eftir fyrsta hring í dag, við krefjandi aðstæður vegna veðurs, jöfn heimakonunni Fjólu Margréti Viðarsdóttur á +4 höggum. Perla er komin heim eftir fyrsta veturinn sinn í bandaríska háskólagolfinu, þar sem hún spilar með Louisiana State háskólanum líkt og Gunnlaugur Árni Sveinsson. „Það er alveg geggjað að geta æft og spilað allt árið og stundað nám í leiðinni. Það er alveg geggjað,“ segir Perla sem fetar í fótspor bróður síns, ríkjandi Íslandsmeistarans Dagbjarts Sigurbrandssonar, sem nú hefur lokið sínu námi í Bandaríkjunum. Klippa: Perla spennt fyrir sumrinu Í sumar verður í nógu að snúast hjá þessari efnilegu Grafarvogskonu sem meðal annars á það á ferilskránni að hafa orðið Evrópumeistari 16 ára og yngri, spilað í Junior Solheim bikarnum, og orðið sú næstyngsta frá upphafi til að verða Íslandsmeistari, 15 ára gömul árið 2022. „Ég er rosalega spennt fyrir Íslandsmótinu í sumar, þar sem það verður í Korpunni, á mínum heimavelli. Ég er búin að búa í Staðahverfinu allt mitt líf þannig að ég er búin að bíða eftir þessu lengi,“ segir Perla. Hún mun einnig hafa nóg fyrir stafni á mótum erlendis. „Ég verð á EM einstaklinga og EM landsliða, svo mögulega Opna breska og vonandi einu atvinnumannamóti, ef ég fæ boð,“ segir Perla létt í bragði en viðtalið við hana má sjá hér að ofan.
Golf Tengdar fréttir „Við erum alltaf að gefa í“ Íslenska golfsumarið hófst formlega í dag með Reykjanesmótinu, fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar, og framundan eru spennandi mánuðir hjá íslenskum áhuga- og atvinnukylfingum sem sjaldan hafa myndað eins breiða sveit. 15. maí 2026 12:03 „Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Tómas Eiríksson Hjaltested hefur keppni á GSÍ-mótaröðinni í golfi á morgun sem ríkjandi stigameistari, nýútskrifaður úr háskóla á Flórída og spenntur fyrir komandi tímum. 14. maí 2026 11:32 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira
„Við erum alltaf að gefa í“ Íslenska golfsumarið hófst formlega í dag með Reykjanesmótinu, fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar, og framundan eru spennandi mánuðir hjá íslenskum áhuga- og atvinnukylfingum sem sjaldan hafa myndað eins breiða sveit. 15. maí 2026 12:03
„Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Tómas Eiríksson Hjaltested hefur keppni á GSÍ-mótaröðinni í golfi á morgun sem ríkjandi stigameistari, nýútskrifaður úr háskóla á Flórída og spenntur fyrir komandi tímum. 14. maí 2026 11:32