Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar 16. maí 2026 11:31 Í breyttu almannatryggingakerfi er lögð áhersla á að bæta kjör öryrkja og efla endurhæfingu fólks í kjölfar slysa, veikinda og annarra áfalla. Þannig er því gert kleift að snúa aftur út í samfélagið og á vinnumarkað, allt eftir getu. Það er gríðarlega mikið hagsmunamál, bæði fyrir einstaklinginn og samfélagið í heild. Að snúa aftur til lífsins Það er full ástæða til þess fyrir íslenskt samfélag að gera betur í málefnum fatlað fólks. Fólks sem er af öllu tagi, úr öllum þrepum þjóðfélagsins. Eitt markmiðanna með nýlegum breytingum á almannatryggingakerfinu er að efla endurhæfingu og styðja fólk í því að snúa aftur út í samfélagið og til vinnu, að hluta til eða að fullu, í kjölfar áfalla. Ekki þarf að fjölyrða um þýðingu þess fyrir fatlað fólk að fá öflugan stuðning samfélagsins. Sum eru fötluð frá fæðingu, önnur ekki. Fjöldi fólks lendir í slysum og veikindum á ári hverju sem breyta öllum forsendum lífsins.Áföllum sem breyta færninni til að sinna daglegu lífi; námi, vinnu, áhugamálum, fjölskyldu og vinum. Í slíkum aðstæðum er afskaplega mikilvægt að geta reitt sig á öflugt heilbrigðiskerfi sem vinnur að því að styðja hvern einstakling eins og best verður á kosið. Slíkur stuðningur þarf fyrst og fremst að miða að því að auka lífsgæði fólks með því að bæta heilsu þess, bæði andlega og líkamlega, svo það nái að fóta sig í nýjum aðstæðum. Það er grunnforsendan fyrir því að fólk geti snúið aftur út í lífið. Góð endurhæfingarúrræði eru ekki síður mikilvæg fyrir samfélagið. Það er okkur öllum í hag að efla og endurhæfa fólk til sjálfstæðs lífs og virkrar samfélagsþátttöku. Eins og í allri þjónustu við fatlað fólk eru sveitarfélögin hér í lykilhlutverki. Þau sjá um nærþjónustu og félagslegan stuðning við fatlað fólk og eru þar að auki í góðri stöðu til að bjóða upp á náms- og atvinnuúrræði sem hluta ef endurhæfingarferlinu. Allt styður þetta við aukna færni og sjálfstæði einstaklingsins og auðveldar endurkomuna á vinnumarkað. Öflug endurhæfing skilar árangri Fyrir okkur í Sjálfsbjörg, landssambandi hreyfihamlaðra, er þetta hjartans mál. Við þekkjum af eigin reynslu hversu mikilvægur stuðningurinn er og hverju er hægt að áorka. Samtökin sinna auk þess stóru hlutverki í sérhæfðri endurhæfingu fólks með tauga- og eða heilaskaða undir merkjum Kjarks endurhæfingar. Við sjáum því með eigin augum á hverjum degi hvernig aukin færni og styrkur fólks eflir sjálfsvirðingu þess og veitir því ný tækifæri til að leggja sitt af mörkum. Öflug endurhæfingarúrræði gera fleirum mögulegt að nýta hæfileika sína til að stunda nám, atvinnu, félagslíf og tómstundir. Það er ekkert sem fatlað fólk vill frekar. Jákvæðar breytingar í þágu okkar allra Ein viðamesta breytingin á almannatryggingakerfinu snýst um að tryggja betur hag þessa hóps sem þarfnast endurhæfingar. Kynntar voru til sögunnar nýjar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur sem sjá til þess að fólk hafi sæmilegt lífsviðurværi á meðan það sinnir þessu mikilvægasta verkefni lífs síns. Einn helsti munurinn er að þessum einstaklingum eru nú tryggðar lágmarkstekjur á meðan þeir bíða eftir því að hefja endurhæfingu eða þegar heilsubrestur seinkar meðferð. Áður var það þannig að fólk sem beið endurhæfingar gat verið algjörlega tekjulaust, jafnvel til lengri tíma. Breytingarnar eru því jákvæðar og auka verulega líkurnar á því að fólk geti snúið aftur til vinnu. Sjúkra- og endurhæfingargreiðslurnar styðja þannig við ein helstu markmið kerfisbreytinganna, sem eru að stuðla að aukinni atvinnuþátttöku öryrkja. Margt fleira þarf hins vegar að koma til. Mikilvægt er að ríki, sveitarfélög og hagsmunasamtök fatlaðs fólks taki höndum saman til að tryggja að markmið breytinganna náist að fullu. Hvatning til nýrra sveitarstjórna Við í Sjálfsbjörg, landssambandi hreyfihamlaðra, höfum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga vakið athygli á ýmsu því sem betur mætti fara varðandi aðgengi, þjónustu og réttindi fatlaðs fólks. Nú er hins vegar ekki annað eftir en að óska nýjum sveitarstjórnum landsins alls hins besta á komandi kjörtímabili og hvetja þær til að sinna málaflokki fatlaðs fólks af metnaði. Við hvetjum sveitarfélögin til að uppfylla skýra lagaskyldu sína um að veita fötluðu fólki bestu mögulegu þjónustu sem völ er á til að koma til móts við stuðningsþarfir þess. Einungis þannig er hægt að ná markmiðum laganna um að virða mannréttindi fatlaðs fólks og tryggja sjálfræði þess og sjálfstæði. Þá hvetjum við sveitarfélögin til að vinna markvisst að því að efla endurhæfingu og fjölga hlutastörfum. Framlag sveitarfélaganna í þeim efnum er mikilvæg forsenda þess að breytingarnar á almannatryggingakerfinu takist sem skyldi. Ekkert án okkar! Höfundur er formaður Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þuríður Harpa Sigurðardóttir Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun