Nú er ábyrgðin þín kæri sveitarstjórnarmaður Jóhannes Þór Skúlason skrifar 17. maí 2026 20:03 Í dag er Alþjóðlegur baráttudagur gegn fordómum gegn hinsegin fólki, IDAHOBIT dagurinn. Dagurinn er haldinn þann 17. maí ár hvert með viðburðum og vitundarvakningu í meira en 130 löndum um allan heim, og miðar að því að auka vitund um brot á réttindum hinsegin fólks, auka þekkingu og vinna gegn fordómum. Alþjóðlegt þema IDAHOBIT dagsins 2026 er „í hjarta lýðræðisins“ (e. At the heart of Democracy) og minnir á að raunveruleg lýðræðissamfélög byggja á réttlæti, jöfnuði og frelsi allra íbúana, ekki bara sumra. Sagan af lýðræðisveislunni Í gær var mikil lýðræðisveisla á Íslandi þar sem við, hvert og eitt, völdum okkur sveitarstjórnarfulltrúa til að fara með stjórn nærsamfélagsins okkar næstu fjögur árin. Hinsegin fólk á Íslandi gekk að kjörborðinu eins og aðrir í samfélaginu, eftir kosningabaráttu sem minnti rækilega á að það er þörf á áminningu eins og IDAHOBIT deginum á Íslandi, ekki síður en annars staðar í heiminum. Sum framboð virtust þannig telja það mikilvægt fyrir menntun barna að þau sjái tölur en ekki bókstafi á einkunnaspjaldinu, en höfðu það annað hvort á stefnuskránni eða básúnuðu með orðræðu frambjóðenda að ótækt væri að leyfa hinsegin fræðslu í skólum, fræðslu sem styður við markmið aðalnámskrár um jafnrétti og mannréttindi og byggir á hæfniviðmiðum námskrárinnar. Markmið fræðslunnar er að búa hinsegin börnum og ungmennum, sem og börnum hinsegin foreldra, öruggara umhverfi og stuðla að opnara og frjálsara skólasamfélagi, sem gagnast öllum börnum og er því fyrst og fremst öflug forvarnaraðgerð. Semsagt: Inn með tölustafi í einkunnagjöf því það er mikilvægt fyrir börn, út með forvarnir gegn hinsegin fordómum því svoleiðis er hættulegt börnum. Á sama hátt varð mikil umræða um það hvort regnbogafánar mættu hanga uppi í og við grunnskóla því á nokkrum framboðum og frambjóðendum mátti skilja að það væri ótækt með öllu. Hér skal áréttað að í samhengi skólastarfs eru regnbogafánar tákn þess að öll börn í skólanum séu velkomin og að þau eigi öll jafnan rétt til öryggis og vellíðanar í skólasamfélaginu. Ofan í kaupið reyndu sumir frambjóðendur svo að bjarga sér úr öngstræti umræðunnar með því að gefa í skyn að þau hefðu ekkert á móti „gamla góða“ regnbogafánanum, en „nýi fáninn“ væri einhvern vegin ekki í lagi. Undarleg nálgun, því allir regnbogafánarnir tákna nákvæmlega það sama, samþykki og öryggi hinsegin fólks í samfélaginu. Semsagt: Niður með regnbogafánana, upp með þann íslenska. Og enginn útskýrði af hverju þeir mega ekki bara vera báðir uppi hlið við hlið í samfélagi sem leggur áherslu á jöfnuð borgaranna. Ábyrgð kjörinna fulltrúa: Ætlar þú að draga úr fordómum eða ýta undir þá? Nú liggja úrslit fyrir í öllum sveitarfélögum og því spyr hinsegin samfélagið alla nýkjörna sveitarstjórnarfulltrúa, á þessum alþjóðlega degi gegn fordómum gegn hinsegin fólki: Kæri sveitarstjórnarfulltrúi: Hvað ætlar þú að gera á kjörtímabilinu til að draga úr fordómum gegn hinsegin fólki? Ætlar þú að skipa skólum að draga niður regnbogafána Ætlar þú að segja upp samningum sveitarfélagsins um hinsegin fræðslu í skólum sem er eina raunverulega forvarnaverkefnið gegn hinsegin fordómum í skólum á Íslandi? Vissir þú að samkvæmt íslensku æskulýðsrannsókninni sem gerð er í unglingadeildum grunnskóla og í framhaldsskólum, segjast nærri 20% nemendanna upplifa sig sem hinsegin á einhvern hátt? Um einn nemandi af hverjum fimm, fjórir nemendur í hverjum 20 barna bekk og því nærri 20% líkur á að barnið eða barnabarnið þitt sé eitt af þeim. Stjórnmálafólk sem er andsnúið hinsegin fræðslu í skólum heldur því gjarnan á lofti að þau séu ekki á móti neinum, allir megi vera eins og þau eru fyrir þeim, en fræðsla um hinsegin málefni eigi bara ekki erindi við börn og eigi því ekki heima í skólum. Nærri allir nemendur í unglingadeildum grunnskóla og framhaldsskólum eru börn undir 18 ára aldri. Um sjö þúsund börn í grunn- og framhaldsskólum segjast aðspurð vera hinsegin. Ef þú kæri sveitarstjórnarfulltrúi, ætlar að berjast gegn því að regnbogafáninn sem þau skynja sem tákn um öryggi og samþykki í skólasamfélaginu megi ekki áfram vera það, þá hefur það áhrif á líf þeirra. Ef þú kæri sveitarstjórnarfulltrúi, ætlar að afnema forvarnafræðsluna sem styður við betri þekkingu á veruleika þeirra, eðlilega virðingu fyrir þeim sem persónum, góð samskipti þeirra við aðra nemendur og öryggi þeirra í skólanum, þá hefur það áhrif á líf þeirra. Hvort heldur þú að þau áhrif verið jákvæð eða neikvæð fyrir þessi börn? Ef stjórnmálamaðurinn má, þá má ég líka Ábyrgð stjórnmálafólks stoppar ekki við orðalag stefnuskrárinnar. Það hvernig stjórnmálafólk talar og skrifar í opinberri umræðu hefur bein áhrif á fólkið sem hlustar. Í nágrannalöndum okkar hefur á undanförnum árum sést skýrt og ótvírætt samhengi milli orðræðu um hinsegin fólk og hinsegin málefni í stjórnmálaumræðu annars vegar og aukinna fordóma og ofbeldis gegn hinsegin fólki. Það er ódýr og auðveld stjórnmálaorðræða að segja „ég er ekki á móti neinum, EN…“ og „allir mega vera eins og þeir eru, EN…“. Það er hins vegar gömul saga og ný að ýmsir sem hlusta skilja þetta „EN…“ og það sem kemur á eftir því sem réttlætingu fyrir eigin fordómum og ofbeldi. Þess vegna ber stjórnmálafólk mun meiri ábyrgð en fólk almennt í umræðu um hinsegin fólk og aðra minnihlutahópa samfélagsins. Ætlar þú að rísa undir þeirri ábyrgð, kæri sveitarstjórnarfulltrúi? Getur þú sagt: „Allir mega vera eins og þeir eru, OG ég ætla að styðja við að það geti í alvöru verið þannig í okkar sveitarfélagi“? Fræðsla og aukin þekking er besta vörnin gegn fordómum Fordómar eru samkvæmt skilgreiningunni það að dæma eitthvað án þess að þekkja það, það að hafa fyrirfram mótaðar skoðanir sem byggjast ekki á þekkingu. Fræðsla og aukin þekking er því lykilforvörn gegn fordómum hvar sem þeir birtast. Það er jafn satt um fordóma gegn hinsegin fólki og alla aðra fordóma. Þess vegna skiptir það sérstaklega miklu máli í dag, á alþjóðlegum degi gegn fordómum gegn hinsegin fólki, að sveitarstjórnarfólk líti inn á við (til dæmis í meirihlutaviðræðum næstu daga) og finni til ábyrgðar sinnar þegar kemur að því að vinna gegn eða styðja við fordóma. Það sem þið segið og gerið næstu fjögur ár hefur bein áhrif á líf fólks. En ef það sem er fjallað um hér að ofan hreyfir ekki við þér kæri stjórnmálamaður, þá getur verið hollt að muna að meirihluti þessara sjö þúsund hinsegin barna verður kominn með kosningarétt eftir fjögur ár. Hvað ætlarðu að segja við þau þá? Höfundur er stjórnarmaður í Samtökunum‘78 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Jóhannes Þór Skúlason Mest lesið Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun