Aron fagnaði sigri eftir bráðabana Valur Páll Eiríksson skrifar 17. maí 2026 20:58 Aron Snær (fyrir miðju) fagnaði sigri eftir bráðabana við Axel (til hægri). Mynd/GSÍ Aron Snær Júlíusson fagnaði sigri á fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar í golfi sem fram fór um helgina eftir mikla spennu. Perla Sól Sigurbrandsdóttir fagnaði sigri í kvennaflokki.
Leiknir voru tveir hringir á mótinu sem fram fór á Suðurnesjum. Fyrsti hringurinn á Hólmsvelli í Leiru. Annar hringurinn átti að fara fram á Kirkjubólsvelli við Sandgerði á laugardaginn en var aflýst vegna veðurs. Mótið var því aðeins tveir hringir í stað þriggja og lokahringurinn í dag var aftur á Hólmsvelli. Aðstæður voru töluvert betri í dag en á fyrsta hring í Leirunni á föstudaginn var og skorið sýndi það. Aron Snær Júlíusson vann karlaflokkinn í bráðabana, en hann og Axel Bóasson enduðu jafnir á þremur höggum undir pari. Sextánda holan var leikin í bráðabananum, og vann Aron með öruggu pari. Aron Snær lék best allra á mótinu í dag, á sex undir pari vallar og tapaði ekki höggi á hringnum. Tómas Eiríksson Hjaltested, ríkjandi stigameistari mótaraðarinnar varð þriðji á tveimur undir pari. Perla vann kvennaflokkinn Perla Sól (fyrir miðju) fagnaði sigri í dag.Mynd/GSÍ Spennan var mikil framan af í kvennaflokki en þær Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR og Fjóla Margrét Viðarsdóttir úr Golfklúbbi Suðunesja voru jafnar fyrir hring dagsins. Þær voru enn jafnar þegar hringurinn var hálfnaður en þá skildu leiðir. Perla lék seinni níu á höggi undir pari en Fjóla Margrét á fjórum yfir parinu. Perla fagnaði því sigri á fjórum yfir pari í heildina en Fjóla Margrét á níu yfir pari. Eva Kristinsdóttir átti góðan hring í dag og náði þriðja sætinu með hring upp á 73 högg.
Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira