Lífið

Lygi­lega erfið þrautabraut

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svakaleg þraut.
Svakaleg þraut.

Í lokaþættinum af Taskmaster fengu keppendur verkefni frá Jóhanni Alfreð sem gekk út á að koma glæsikerru yfir endalínuna.

Einn keppandi átti að sitja ofan í kerrunni en hinir sem ýttu voru með bundið fyrir augun. Alls kyns hindranir voru á vegi þeirra og því var verkefnið erfitt. Og ofan á allt máttu keppendur hvorki tala saman á íslensku né ensku.

Skipt var í tvö lið en í öðru þeirra voru þau Edda Björgvins, Snjólaug Lúðvíks og Villi Netó. Sveppi og Sigurður Þór voru saman í hinu liðinu.

Hér að neðan má sjá hvernig til tókst en hægt er að sjá alla þættina af Taskmaster inni á Sýn+.

Klippa: Verulega erfitt þrautabraut





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.