Gunnlaugur Árni náði stórum áfanga Sindri Sverrisson skrifar 21. maí 2026 14:10 Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að gera frábæra hluti í bandaríska háskólagolfinu. Instagram/@arni_sveinsson Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson bætti rós í hnappagat sitt í gær þegar hann komst með liði LSU inn á úrslitamót bandaríska háskólagolfsins.
Mótið fer fram í Kaliforníu dagana 29. maí til 3. júní og verður Gunnlaugur Árni nú með á því í fyrsta sinn. Þetta er í annað sinn á síðustu sex árum sem LSU kemst inn á úrslitamótið. Gunnlaugur Árni hefur verið í lykilhlutverki í liði LSU á tímabilinu og hæst náð upp í 8. sæti á heimslista áhugakylfinga. Á mótinu sem lauk í Arizona í gær endaði LSU í 3. sæti og komst þannig inn á úrslitamótið. Gunnlaugur hafnaði í 43. sæti í einstaklingskeppninni eftir að hafa leikið afar vel á þriðja og síðasta hring, eða 69 höggum, og var hann samtals á tveimur höggum yfir pari. Tveir liðsfélaga hans enduðu jafnir í 6. sæti og samtals var lið LSU á -30 höggum, fimm höggum á eftir Oklahoma State en 19 höggum á eftir Arizona sem vann mótið, og sex höggum á undan Duke og Arkansas State. Á úrslitamótinu spila 30 sterkustu háskólalið Bandaríkjanna um NCAA-meistaratitilinn.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira