HM-hetja mun stýra Alberti Sindri Sverrisson skrifar 26. maí 2026 22:17 Fabio Grosso virðist vera að taka við Fiorentina. Getty/Luca Amedeo Bizzarri Allt útlit er fyrir að Fabio Grosso verði næsti þjálfari ítalska knattspyrnuliðsins Fiorentina og þar með þjálfari landsliðsmannsins Alberts Guðmundssonar.
Félagaskiptafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að munnlegt samkomulag sé nánast í höfn um að Grosso verði aðalþjálfari Fiorentina til næstu tveggja ára. Verið sé að vinna í smáatriðum áður en hægt verði að skrifa undir samninga. 🚨🟣 Fiorentina are closing in on verbal agreement with Fabio Grosso as next head coach.Two year contract almost agreed, details yet to be sorted ahead of deal done. ⚜️🇮🇹 pic.twitter.com/iarc7wasNJ— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 26, 2026 Framkvæmdastjóri Sassuolo, liðsins sem Grosso hefur stýrt síðustu tvö tímabil, hefur þegar staðfest við Sky á Ítalíu að hann búist ekki við að þjálfarinn haldi áfram. Paolo Vanoli tók við Fiorentina í nóvember og gerði við hann samning sem gilti til loka leiktíðarinnar. Þó að hann hafi séð til þess að Fiorentina bjargaði sér frá falli þá virðist tími hans ekki verða lengri með liðinu. Albert er samningsbundinn Fiorentina til sumarsins 2029 og fær nú ef að líkum lætur mikla HM-hetju sem þjálfara. Vinstri bakvörðurinn Grosso skoraði nefnilega ógleymanlegt sigurmark gegn Þjóðverjum í undanúrslitum HM 2006 og svo úr vítinu sem tryggði Ítalíu heimsmeistaratitilinn með sigri gegn Frakklandi í vítaspyrnukeppni. Hann hóf þjálfaraferilinn með unglingalið Juventus árið 2014 og hefur svo þjálfað á Ítalíu og í Sviss en einnig lið Lyon í Frakklandi í skamman tíma haustið 2023. Honum hefur hins vegar gengið vel með Sassuolo og kom liðinu upp úr B-deild á fyrsta tímabili og endaði svo með það í 11. sæti A-deildar á nýafstöðnu tímabili.
Ítalski boltinn Mest lesið Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Handbolti Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Handbolti Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Fótbolti Fury og Joshua mætast í fyrsta sinn í desember Sport Klopp og Xavi sættust á stig Fótbolti Fleiri fréttir Rooney tekur fyrir kjaftasögur Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Klopp og Xavi sættust á stig Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Kósovó - Írland 1-0 | Heimir og félagar byrja á tapi í Kosovo Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Landsliðin flúðu haustlægðina Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sjá meira