Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Stefán Árni Pálsson skrifar 27. maí 2026 14:16 Ingvar Jónsson í leik með Víkingi. Í gær tók Stjarnan á móti Víkingi í níundu umferð Bestu deildar karla. Víkingur vann leikinn 3-1 en auk þess að vera stórleikur í deildinni var einnig um að ræða styrktarleik fyrir markvörðinn Ingvar Jónsson sem er í dag leikmaður Víkings en var á sínum tíma á mála hjá Stjörnunni. Ingvar berst í dag við krabbamein sem hann var greindur með fyrir skömmu.
Hægt var að kaupa styrktarmiða á fimm, tíu og fimmtán þúsund krónur á vefsíðunni Stubbur eða í appi. Fjölmargir nýttu sér það. Rætt var við þá Halldór Orra Björnsson, fyrrum samherja Ingvars, og Þórarin Inga Valdimarsson, verkefnastjóra Stjörnunnar, í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöldi. „Þetta er verðugt verkefni sem Ingvar vinur okkar er að berjast við núna með fjölskyldunni og þetta hefur verið frábært framtak hjá Stjörnunni og Víkingi að snúa bökum saman og vera með svona styrktarleik,“ segir Halldór. „Þetta hefur gengið mjög vel og væntingar okkar fyrir söfnuninni eru miklar. Það eru menn sem hafa verið í kringum Ingvar í landsliðinu sem hafa lagt málefninu lið. Við bjuggumst kannski ekki við því en þetta er bara stórglæsilegt,“ segir Þórarinn. Fyrrum samherjar Ingvars í Stjörnunni ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar og þar á einnig að safna fyrir Ingvari og fjölskyldu hans. „Við ætlum að hlaupa, vinir Ingvars og gamlir liðsfélagar úr Stjörnunni. Ég hvet alla sem vilja taka þátt í því að hafa samband og það verður einhver Facebook-hópur stofnaður og svona,“ segir Halldór. Hægt er að styrkja Ingvar með því að leggja inn á reikning sem knattspyrnudeild Víkings hefur sett upp fyrir hann. Reikningsnúmer: 0357-22-008868 Kennitala: 420787-1469 Hér að neðan má sjá viðtalið síðan í Sportpakkanum í gær.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Uppgjörið: FH - Stjarnan | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira