303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 16:31 Klæmint Andrasson Olsen skoraði 10 mörk í 24 deildar- og bikarleikjum með Breiðabliki. Vísir/Hulda Margrét Fyrrum Bliki náði mögnuðum tímamótum í færeyska fótboltanum um helgina. Klæmint Andrasson Olsen lék þá sinn fimm hundraðasta leik með NSÍ.
Klæmint lék með Blikum sumarið 2023 en hefur leikið með NSÍ í Færeyjum allan sinn feril í heimalandinu. „Allt frá því að Klæmint Andrasson Olsen spilaði sinn fyrsta leik fyrir NSÍ gegn Skála árið 2007 hefur hann skráð sig á spjöld sögunnar hjá félaginu á þann hátt sem fáir aðrir hafa gert. Í gegnum sigra, mótlæti, deildarkeppnir, bikarkeppnir, Evrópukvöld og óteljandi minningar hefur Klæmint alltaf borið gulu og svörtu litina með stolti,“ segir í frétt um afrekið á kiðlum NSÍ frá Runavík. „Að ná 500 leikjum fyrir æskufélagið sitt er ótrúlegt afrek. Að skora 303 mörk í leiðinni er alveg sérstakt,“ segir þar enn fremur. Klæmint spilar þessa dagana fyrir Sigurð Ragnar Eyjólfsson sem tók við þjálfun NSÍ fyrir tímabilið. Liðið er í þriðja sæti eftir umferð helgarinnar en með jafnmörg stig og liðin fyrir ofan. „Í gegnum árin hafa tækifæri og tilboð borist annars staðar frá, en Klæmint kaus alltaf að vera trúr félaginu þar sem allt hófst. Slíka tryggð sér maður ekki oft í nútímafótbolta og er það ein helsta ástæðan fyrir því að hann er svo mikils metinn, ekki bara í Runavík, heldur um allar Færeyjar,“ segir í fréttinni en það voru aðeins Blikar sem plötuðu hann úr gula búningnum. Klæmint er einnig með 64 landsleiki og 10 mörk fyrir Færeyjar. „Fyrir hvern ungan leikmann sem í dag klæðist NSÍ-búningi er Klæmint sönnun þess að draumar geta ræst með vinnusemi, tryggð og þrautseigju. Hann er fyrirmynd, leiðtogi og innblástur fyrir aðra. 500 leikir eru ekki bara tala. Það eru næstum tveir áratugir af tryggð við eitt félag, einn stað og eitt samfélag,“ segir í fréttinni eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by NSÍ Runavík FC (@nsirunavikfc)
Breiðablik Færeyski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Fleiri fréttir Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Sjá meira