Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar 2. júní 2026 07:00 Í nútímasamfélagi eru dagar margra fjölskyldna orðnir afar annasamir. Foreldrar þurfa að samræma vinnu, skóla barna sinna, heimilishald og tómstundir barna á sama tíma og umferð, fjarlægðir og tímaskortur setja svip á daglegt líf. Fyrir marga verða síðdegisstundirnar að kapphlaupi við klukkuna þar sem skutl á milli skóla, æfinga og tómstunda tekur bæði tíma og orku. Þetta getur reynst sérstaklega erfitt fyrir foreldra sem hafa ekki bíl, stuðningsnet eða sveigjanlegan vinnutíma. Skólabyggingar vannýttar Ein lausn sem vert er að skoða er að nýta skólann betur sem miðju í lífi barna. Með því að bjóða í auknum mæli upp á listir, félagsstarf og aðrar tómstundir í skólahúsnæði eftir að kennslu lýkur mætti einfalda daginn til muna. Börn þyrftu síður að ferðast á milli staða; leiðbeinendur, þjálfarar og kennarar gætu komið til þeirra og haldið starfinu áfram innan sama umhverfis. Margar skólahljómsveitir hafa þegar sýnt að slík samfella getur virkað vel, þar sem tónlistarnám og skólastarf tengjast með góðum árangri. Fleira jákvætt fæst með þessu fyrirkomulagi því með færri bílferðum mætti líka draga úr umferð og losun og gefa fjölskyldum meiri tíma saman. Stýrihópur á vegum barna- og menntamálaráðherra vinnur nú að stefnu og aðgerðum sem eiga að tryggja börnum jöfn tækifæri og rjúfa vítahring fátæktar. Undirrituð fer fyrir starfshópnum en stefnt er að því að kynna drög að aðgerðum í samráðsgátt um mitt sumar. Skóli og frístund undir sama þaki Hópurinn hefur átt víðtækt samráð við fjölskyldur, sveitarfélög, skólasamfélagið, félagasamtök og aðra hagaðila. Í því samtali hefur hugmyndin um aukna samþættingu skóla og frístundastarfs; að skóli og frístund verði undir sama þaki æ oftar komið til tals. Samþætting sem þessi gæti dregið verulega úr álagi á fjölskyldur. Foreldrar þyrftu ekki að hlaupa úr vinnu til að keyra börn milli staða eða setja saman flókna áætlun um skutl milli staða. Börnin nytu meiri stöðugleika, dagurinn yrði samfelldari og minni tími færi í bið, akstur og óvissu. Aukin samfella milli skóla og frístunda gæti jafnframt styrkt félagsleg tengsl, öryggi og vellíðan barna. Liður í að auka jöfnuð Þetta snýst einnig um jafnrétti. Í dag ráða aðstæður foreldra oft miklu um hvort börn komast í tómstundir. Samfella skóla og frístundastarfs gæti reynst tekjulágum barnafjölskyldum sérstaklega vel. það myndi draga úr kostnaði, skutli og skipulagsálagi. Ef fjölbreytt starf færi fram innan skólans yrðu tækifærin aðgengilegri, óháð efnahag, búsetu eða samgöngumöguleikum. Þetta getur skipt sköpum fyrir börn sem annars missa af mikilvægu félagslegu og uppbyggilegu starfi. Áskoranirnar eru vissulega til staðar en ávinningurinn getur verið mikill. Skóli og frístund undir sama þaki er ekki aðeins skipulagsmál. Það er leið til að byggja barnvænna samfélag og jafna tækifæri barna. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar