Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2026 13:00 Kasper Waarst Högh fagnar einu marka sinn fyrir Bodö/Glimt í Meistaradeildinni. Getty/Chris Brunskill Norska fótboltafélagið Bodö/Glimt sópaði til sín 497 milljónum norskra króna með velgengni sinni í Evrópukeppnum á síðasta ári. Það leiddi til gríðarlegrar tekjuaukningar upp á 125 prósent samanborið við árið áður.
497 milljónir norskra króna eru 6,6 milljarðar í íslenskum krónum og koma félaginu skiljanlega í algjöra lykilstöðu í norskum fótbolta. Tölurnar koma fram í nýrri skýrslu um fjárhagsstöðu norskrar knattspyrnu en endurskoðunarfyrirtækið Deloitte stendur að baki henni. Árleg úttekt, sem nefnist Toppfotballbarometeret, sýnir að Bodö/Glimt hafði heildartekjur upp á 759 milljónir norskra króna árið 2025. Hið mikla stökk samanborið við árið áður má rekja til þátttöku í Evrópukeppnum. Bodö/Glimt komst í undanúrslit Evrópudeildarinnar tímabilið 2024 til 2025. Síðasta haust tók liðið frá Bodö þátt í hinni afar eftirsóttu og verðmætu riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Það eru peningar frá þessum tveimur þátttökum sem hafa stuðlað að hinni gífurlegu tekjuaukningu. Bodö/Glimt komst síðan alla leið í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar. Liðið vann Manchester City og Atlético Madrid í síðustu leikjum sínum í riðlakeppninni og sló síðan ítalska stórliðið Internazionale út úr 32 liða úrslitum. Ævintýrið endaði í sextán liða úrslitunum á móti portúgalska félaginu Sporting þrátt fyrir 3-0 sigur í fyrri leiknum. Sporting vann seinni leikinn 5-0 í Portúgal og endaði um leið fimm leikja sigurgöngu Bodö/Glimt í Meistaradeildinni.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Norski boltinn Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Sjá meira