Markaveisla í Lengjudeildinni Andri Broddason skrifar 5. júní 2026 21:58 Leiknir unnu góðan sigur í kvöld. Leiknir Reykjavík Þrír leikir voru spilaðir í Lengjudeild karla í kvöld og fengum við vægast sagt markaveislu. Í þremur leikjum voru skoruð samtals tólf mörk og þar af sex í einum leik.
Njarðvík tók á móti ÍR og byrjuðu ÍR-ingar sterkir með marki strax á 8. mínútu eftir klaufaskap hjá Njarðvíkingum. Njarðvíkingar svara með tveimur mörkum áður en flautað er til hálfleiks og eru yfir þegar seinni hálfleikur byrjar, 2-1. Í hálfleik gerir ÍR þrefalda skiptingu en það hefur ekki hjálpað þeim í leiknum. Í seinni hálfleik var aðeins eitt lið á vellinum og það var Njarðvík. Þeir skora þrjú mörk í seinni hálfleik og innsigla sterkan sigur 5-1. Með sigrinum fer Njarðvík upp í sjöunda sæti deildarinnar og er þar í fínum málum. Náðu í sigur á lokasprettinum Ægir tók á móti Leikni í Þorlákshöfn og er hægt að segja að þarna hafi mæst tvö lið stál í stál. Eftir rólegan fyrri hálfleik þá var þörf fyrir vítamínsprautu í seinni hálfleik. Bæði lið gera breytingar í hálfleik en hvorugt lið náði að ógna almennilega í byrjun seinni hálfleiks. Á 70. mínútu opnast flóðgáttirnar og á níu mínútna kafla skora Leiknismenn þrjú mörk. Vörn Ægis opnaðist loksins og eftir fyrsta markið héldu mörkin bara áfram að koma. Leiknir sótti góðan sigur þar sem leikurinn endaði 3-0. Leiknir hoppaði vel upp töfluna með þessum sigri og situr í fimmta sæti deildarinnar. Ægir situr eftir með súrt ennið eftir góðar 70. mínútur í ellefta sæti. Unnu toppliðið manni færri Topplið Aftureldingar fór í heimsókn í Kórinn þar sem HK tók á móti því. Fyrir leikinn var Afturelding búin að vinna fimm leiki í röð. Mikill hasar var í leiknum en HK komst yfir strax á 11. mínútu þegar Atli Þór Gunnarsson fylgdi eftir skoti sem var varið út í teiginn. Tíu mínútum seinna jafnar Afturelding leikinn eftir aukaspyrnu og staðan jöfn í hálfleik 1-1. Í seinni hálfleiknum gerist furðulegt atvik þegar Afturelding gerir tvöfalda skiptingu á meðan HK er að taka horn. Leikmennirnir voru varla komnir inn í teiginn þegar hornspyrnan var tekin og hún fer beint í markið og HK komið yfir 2-1. Nokkrum mínútum síðar fær Haukur Leifur Eiríksson réttilega rautt spjald eftir glannalega tæklingu og HK var manni færri síðustu tíu mínúturnar. Afturelding reyndi eins og hún gat að jafna í lokin en HK náði að halda sigrinum út. HK sitja nú í þriðja sæti deildarinnar, aðeins stigi frá toppliði Aftureldingar. Flottur sigur hjá HK og mikilvægt að halda út einum færri.
Lengjudeild karla Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? „Vorum miklu betri allan tímann“ Sjá meira