Gunnlaugur aðeins tveimur höggum frá toppnum eftir fyrri hringinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2026 18:11 Gunnlaugur Árni Sveinsson spilaði fyrsta hringinn á fimm höggum undir pari. Getty/Tanner Pearson Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, eru á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open á The Lakes Golf & Country Club-vellinum í Westerville, Ohio. Gunnlaugur Árni gerði mjög góða hluti á fyrsta hring.
Lokaúrtökumót U.S. Open er síðasta stigið í átt að þátttöku í einu af fjórum risamótum golfsins. Þar leika kylfingar 36 holur á einum degi og aðeins þeir fjórir efstu tryggja sér sæti á sjálfu U.S. Open mótinu. Gunnlaugur Árni er jafn í fjórða sæti eftir fyrri átján holur mótsins, tveimur höggum á eftir efsta manni. Hann lék hringinn á 67 höggum eða fimm undir pari. Gunnlaugur fékk fjóra fugla og fimm pör á fyrri níu holunum og fylgdi því eftir með þremur pörum á holum tíu til tólf. Eini skolli hringsins kom á þrettándu holunni en hann svaraði honum með frábærum erni á sextándu holunni. Gunnlaugur er því í góðum málum fyrir seinni umferð mótsins sem hefst innan skamms. Stutt er þó á milli manna en fimm aðrir kylfingar léku hringinn einnig á fimm höggum undir pari. Dagbjartur lék á 73 höggum, einu höggi yfir pari, og er jafn í 37. sæti. Íslandsmeistarinn fékk par á allar holurnar á fyrri níu og opnaði seinni níu holurnar á fugli. Skolli á tólftu og tvöfaldur skolli á fjórtándu reyndust einu töpuðu högg hringsins, en Dagbjartur fékk einn fugl til viðbótar á lokaholunum.
Golf Opna bandaríska Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira