Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar 14. júní 2026 10:02 Nú þegar júnímánuður er genginn í garð lita regnbogafánar götur og torg um næstum allan heim. Fyrir sumum er þetta tími hátíðarhalda og gleði. Fyrir öðrum er mánuðurinn áminning um Stonewall-uppþotin árið 1969, þegar jaðarsettur hópur fékk nóg og ákvað að standa í fæturnar. Hinsegin mánuðurinn er meira en söguleg minning eða litrík skrúðganga. Hann er árlegt ákall til samfélagsins um að staldra við og ígrunda hvernig við mætum náunganum. Í andstöðu gegn réttindum hinsegin fólks, og þá sérstaklega trans fólks, er oft kastað fram slagorðum um heilbrigða skynsemi, kristileg hugtök og óhagganlega líffræði. Okkur er sagt að manneskjan geti ekki flúið kynjatvíhyggju náttúrunnar. Nútímavísindi draga hins vegar upp mun flóknari mynd. Rannsóknir í taugavísindum, þar sem segulómun hefur verið notuð til að skoða heilastarfsemi ungs fólks, benda til þess að heilavirkni trans barna og unglinga líkist oft því kyni sem þau upplifa sig sem, frekar en því kyni sem þeim var úthlutað við fæðingu (sjá m.a. rannsókn Julie Bakker o.fl. sem kynnt var á ráðstefnu evrópska innkirtlafræðafélagsins árið 2018). Kynvitundin á sér því rætur í taugakerfinu sjálfu, ekki einungis í líkamsbyggingunni. Trans fólk er ekki að ímynda sér neitt, það er að lifa með innri veruleika sem passar ekki við ytri líkamann. Þegar við horfum á þetta út frá kristnu sjónarhorni rímar þessi veruleiki fullkomlega við boðskapinn um einlægan kærleika. Jesús setti miskunnsemina og mennskuna ávallt ofar bókstaf lögmálsins. Hann mætti fólki þar sem það var statt og braut niður félagsleg flokkunarkerfi samtíma síns. Páll postuli minnir okkur á það sama í Galatabréfinu: Með því að trúa á Krist Jesú eruð þið öll Guðs börn... Hér er hvorki Gyðingur né annarrar þjóðar maður, þræll né frjáls maður, karl né kona. Þið eruð öll eitt í Kristi Jesú. Í augum Guðs er það dýpsti kjarni sálarinnar sem gildir. Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá, sagði Jesús. Ef við mætum hinsegin fólki með afneitun, fordómum og útskúfun uppskerum við einangrun, vanlíðan og kvíða. Ef við mætum því með opnum örmum, viðurkenningu og stuðningi, gefum við því frelsi til að blómstra. Hinsegin mánuðurinn er áminning til okkar allra um að velja ávöxt kærleikans. Við eigum að mæta samborgurum okkar sem sálum, en ekki sem kynfrumum. Sýnum þá auðmýkt og mennsku að fagna fjölbreytileikanum. Manneskjan er alltaf dýpri og dásamlegri en nokkurt kynjatvíhyggjubox sem reynt er að troða henni í. Gleðilegan Pride-mánuð. Ást og friður. Höfundur er guðfræðingur, prestur og formaður Trans vina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Hinsegin Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Sjá meira
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar