Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur Árni Jóhannsson skrifar 16. júní 2026 21:48 Stjarnan - Breiðablik Besta Deild Karla Sumar 2026. Emil Atlason að negla boltanum að marki. Vísir / Diego Emil Atlason var frábær fyrir Stjörnuna í kvöld og að öðrum ólöstuðum mikilvægasti maður leiksins. Emil skoraði þrjú mörk fyrir Garðbæinga í 4-4 jafntefli gegn Breiðablik í 10. umferð Bestu deildar karla í fótbolta.
Emil var spurður að því fyrst og fremst hvernig væri hægt að gera upp þennan frábæra fótboltaleik. Breiðablik komst þremur mörkum yfir áður en heimamenn rönkuðu við sér og mundu að þeir eru líka knattspyrnumenn í efstu deild. „Þetta var stórkostleg skemmtun fyrir áhorfendur. Við byrjuðum svolítið brösulega. Það var eitthvað í okkur, ákveðnar tilfinningar sem að við erum að vinna í. Svo unnum við okkur inn í þetta og kannski þegar öllu er á botninn hvolft sanngjarnt að leikurinn hafi endað með jafntefli.“ „Það eru ákveðnir hlutir búnir að eiga sér stað í Stjörnunni, þjálfarinn okkar var látinn fara og við erum búnir að vera að vinna í því og við ætluðum auðvitað að koma vel stemmdir inn í leikinn. Það var eins og eitthvað væri að og við ekki alveg „on it“ fyrstu mínúturnar og ekki alveg í takti. Við hefðum getað stolið þessu í lokin eða öllu heldur, þetta hefði getað dottið báðum megin hérna í lokin.“ Emil skoraði þrjú mörk, sem er heldur betur frábært afrek, er það ekki súrt að ná ekki í öll stigin í kvöld svona út frá því að hafa skorað öll þessi mörk? „Klárlega súrt. Það er alltaf gaman að skora og hvað þá þrennu. Maður gerir það ekki á hverjum degi. Ég er bara mjög glaður að hafa skorað og við sýndum karakter að koma til baka í þessum leik og þessi leikur var frábær skemmtun fyrir alla.“ Að lokum var Emil spurður að því hvort jafnteflið myndi ekki gefa Stjörnunni helling úr því sem komið var. „Frábær karakter hjá okkur að ná í þetta jafntefli. Við þurftum að vinna fyrir því. Svo hefðum við getað unnið þennan leik. Þetta er góð byrjun.“
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fór grátandi af velli Sport Fleiri fréttir Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Sjá meira