Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Aron Guðmundsson skrifar 18. júní 2026 12:51 Mikil þoka er á Shinnecock vellinum þar sem að U.S. Open fer fram. Aðsend mynd: Sigmundur Einar Másson Veðrið er strax farið að setja strik í reikninginn á U.S. Open risamótinu í golfi. Mótið fór af stað í morgun en hafði ekki staðið lengi yfir þegar að leik var frestað vegna þoku. Frestunin stóð yfir í um tvær klukkustundir
Bein útsending frá fyrsta keppnisdegi U.S. Open hefst klukkan fjögur í dag á Sýn Sport. Fyrstu ráshópar voru farnir af stað í sína hringi þegar fresta þurfti leik vegna þoku. Þeir voru beðnir um að yfirgefa völlinn og núna fyrir klukkan eitt bárust tíðindi að því að mótið hæfist aftur klukkan 13.05 á íslenskum tíma. Round 1 of the U.S. Open at Shinnecock Hills will resume at 9:05 a.m. ET.— U.S. Open (@usopengolf) June 18, 2026 Gunnlaugur Árni Sveinsson átti að hefja sinn hring rétt fyrir klukkan hálf sjö í kvöld en nú þykir nokkuð ljóst að hann muni fara seinna af stað í sinn hring í ljósi þess að leik var frestað í um tvær klukkustundir. Búist var við því að veður gæti sett strik í reikninginn á mótinu, en þá aðallega hvað varðar vindstyrk. Þokan kemur mönnum kannski örlítið á óvart. Hvað vindinn varðar gætu það verið góðar fréttir fyrir þá sem eiga teig seint, eins og Gunnlaugur Árni, að fara seinna af stað en áætlað var. Þar með gæti versti vindurinn verið dottinn niður. Didn't take long for our first "Welcome to Shinnecock" moment. pic.twitter.com/I7ZLe49Km5— U.S. Open (@usopengolf) June 18, 2026 Veðurspáin fyrir daginn gæti verið betri. Spáð er einhverri rigningu fyrri part dags og svo á að hvessa eftir því sem líður á daginn. Aðstæðurnar á Shinnecock Hills vellinum eru erfiðarVísir/Getty
Opna bandaríska Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira