Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2026 22:31 Andoni Iraola er tekinn við Liverpool og fær að kynnast meiri pressu en hann hefur nokkurn tímann kynnst á þjálfaraferlinum. Getty/Andrew Powell Jamie Carragher, sérfræðingur Sky Sports og næstleikjahæsti leikmaðurinn í sögu Liverpool, veltir fyrir sér þeim væntingum og kröfum sem verða gerðar til nýja knattspyrnustjóra félagsins.
Spánverjinn Andoni Iraola er tekinn við Liverpool af Arne Slot eftir að hafa gert frábæra hluti með lítinn mannskap Bournemouth á síðustu árum. Nú tekur hann við einu stærsta félagi heims þar sem bæði væntingar og pressa eru miklu meiri en hann er vanur. Carragher segir að Liverpool verði að vera í titilbaráttunni á hans fyrsta tímabili en Arne Slot gerði Liverpool að enskum meisturum á sínu fyrsta tímabili en var rekinn eftir hörmulegt annað tímabil. „Andoni Iraola hefur staðið sig frábærlega síðan hann kom í ensku úrvalsdeildina. Þetta er þessi kraftmikli leikstíll, sennilega svolítið líkur því sem við sáum frá Englandi síðasta miðvikudagskvöld. Mjög ákveðnir og spila boltanum snemma fram á völlinn. Kannski smá vísun í daga Jurgen Klopp hjá Liverpool. Svo þetta er aðeins öðruvísi stíll en hjá Arne Slot,“ sagði Jamie Carragher í viðtali á Sky Sports. „En ég vil alltaf segja þetta um hvaða stjóra Liverpool sem er. Já, Slot fékk mikla gagnrýni á síðasta tímabili. Ég get ekki mótmælt því og ég held að hann geti það ekki heldur, því þetta var svo slakt á síðasta tímabili,“ sagði Carragher. „En við megum ekki gleyma því að hann vann ensku úrvalsdeildina með Liverpool og ég mun aldrei gleyma því. Þannig að stórar þakkir til hans og vonandi er það málið,“ sagði Carragher. „Þeir dagar eru liðnir frá því ég spilaði, þegar stjórar komu inn og þetta var fjögurra eða fimm ára verkefni að reyna að vinna deildina eða komast nálægt því. Þeir dagar eru liðnir,“ sagði Carragher. „Og ég sagði það þegar Slot kom inn. Lið Jurgen Klopp endaði í þriðja sæti, þú verður að berjast um að vinna deildina. Og hann vann deildina,“ sagði Carragher. „Og það sama gildir um Iraola. Liverpool endaði í fimmta sæti á síðasta tímabili, hvergi nærri nógu gott. Þannig að ég býst ekki við því að Liverpool vinni deildina á næsta tímabili, en við erum Liverpool,“ sagði Carragher. „Við ætlum að eyða stórum fjárhæðum í sumar. Við erum með marga frábæra leikmenn og já, við verðum að vera samkeppnishæfir í titilbaráttunni,“ sagði Carragher.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Olise skoraði þrennu í stórsigri Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Sjá meira