Hilmir Snær stígur einn á svið Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. júní 2026 13:46 Hilmir Snær fer með burðarhlutverk í einleiknum Undirdjúpin. Aðsend Hilmir Snær Guðnason stígur á svið í einleiknum Undirdjúpunum en verkið verður sett upp á Litla sviði Borgarleikhússins á komandi leikári. Þorleifur Arnar leikstýrir þessu verki sem er gjarnan lýst sem einu áhrifamesta verki Fjodors Dostojevskís.
Í fréttatilkynningu frá Borgarleikhúsinu segir: „Hilmir Snær mun fara með burðarhlutverkið í Undirdjúpunum, fyndnum og óvægnum einleik byggðum á einu áhrifamesta verki Fjodors Dostojevskís. Verkið verður sett upp á Litla sviði Borgarleikhússins á komandi leikári. Í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar verður sagan að magnþrunginni sýningu um mann sem stendur einn gegn öllum - en þó aðallega sjálfum sér. Í Undirdjúpunum takast á stolt og skömm, þráin eftir nálægð og löngunin til að brjótast undan reglum skynseminnar.“ Í Undirdjúpunum takast á stolt og skömm.Aðsend Þorleifur er fullur tilhlökkunar fyrir komandi leikhúsvetri. „Ég er gríðarlega spenntur að takast á við þetta verkefni. Dostojevski hefur verið mér mjög hugleikinn alla tíð, enda fáir sem skilja manneskjuna og stað hennar í heiminum betur en hann. Og sérstaklega gleðilegt er að takast á við þetta grundvallarverk hans með leikara eins og Hilmi Snæ, leikara sem hefur svo ótrúlega breidd og getur leitt okkur milli hláturs og gráts á svipstundu,” segir hann en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Þorleifur leikstýrir Hilmi Snæ. Þeir unnu síðast saman að Ketti á heitu blikkþaki, sem var einnig sýnd á Litla sviði Borgarleikhússins og hlaut mikið lof gagnrýnenda og leikhúsgesta. Sýningin var tilnefnd til fimm Grímuverðlauna, þar á meðal Hilmir sem leikari ársins í aðalhlutverki, og hlaut Þorleifur verðlaun sem leikstjóri ársins. Leikmynd og búninga hannar Jósef Halldórsson og þýðandi er Maríanna Clara Lúthersdóttir. Undirdjúpin verða frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins í febrúar 2027. „Mega leikhúsgestir eiga von á sýningu sem lifir áfram löngu eftir að tjaldið fellur,“ segir að lokum í fréttatilkynningu.
Leikhús Borgarleikhúsið Menning Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira