Sæti á risamóti í boði hjá Haraldi og Gunnlaugi Aron Guðmundsson skrifar 29. júní 2026 12:30 Haraldur Franklín Magnús og Gunnlaugur Árni Sveinsson munu freista þess að tryggja sér sæti á Opna breska meistaramótinu í golfi á morgun Vísir/Samsett Tveir íslenskir kylfingar, þeir Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur og Gunnlaugur Árni Sveinsson, áhugakylfingur, berjast um sæti á Opna breska meistaramótinu á lokaúrtökumótum á morgun.
Opna breska meistaramótið fer fram á Royal Birkdale vellinum og hefst þann 16.júlí næstkomandi og á morgun fara fram fjögur lokaúrtökumót. Tuttugu sæti eru í boði á risamótið í gegnum lokaúrtökumótin en Opna breska meistaramótið er eitt af fjórum risamótum keppnistímabilsins í golfi ár hvert. Spilaðar verða 36 holur á einum og sama keppnisdeginum og munu efstu fimm kylfingarnir á hverju lokaúrtökumóti fyrir sig tryggja sér sæti á Opna breska meistaramótinu. Með reynsluna og sjálfstraustið í botni Takist Haraldi Franklín að tryggja sér sæti í á Opna breska verður það í annað sinn á ferlinum sem hann keppir á risamótinu. Árið 2018 varð hann fyrsti Íslendingurinn til þess að spila á mótinu. Haraldur á móti í Suður-Afríku undir lok síðasta ársVísir/Getty Ætla má að Haraldur, sem hefur yfir lengri tíma verið einn af okkar bestu kylfingum, mæti með sjálfstraustið í botni til leiks á lokaúrtökumótinu á Dundonald Links á morgun en hann tryggði sér sæti á því móti með frábærri spilamennsku í undankeppninni á Enville golfvellinum fyrir viku síðan. Þar endaði Haraldur jafn í efsta sæti mótsins á sjö höggum undir pari þar sem að sex sæti voru í boði á lokaúrtökumóti morgundagsins. Fór svipaða leið fyrir ekki löngu síðan Gunnlaugur Árni Sveinsson úr GKG mun einnig reyna að tryggja sér sæti á Opna breska á lokaúrtökumóti sem fram fer í West Lancashire á morgun. Takist honum það verður um að ræða annað risamót hans á árinu. Gunnlaugur á Shinnecock Hills vellinum á U.S. Open ásamt kylfusveini sínum og vini, Bjarka PéturssyniVísir/Getty Þessi tvítugi háskólakylfingur úr LSU, sem er einn af bestu áhugakylfingum í heimi, náði frábærum árangri með því að tryggja sér sæti á Opna bandaríska meistaramótinu í gegnum lokaúrtökumót þar sem að úrslitin réðust í bráðabana Á sjálfu risamótinu tókst Gunnlaugi Árna ekki að ná sínu besta fram en mætir reynslunni ríkari í lokaúrtökumót morgundagsins þar sem að hann reynir að tryggja sér eitt af þeim fimm sætum sem í boði eru, meðal annars við reynsluboltann Sergio Garcia .
Opna breska Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira