Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska Valur Páll Eiríksson skrifar 30. júní 2026 18:05 Haraldur Franklín Magnús og Gunnlaugur Árni Sveinsson verða ekki meðal keppenda á Opna breska meistaramótinu í golfi. Vísir/Samsett Hvorki Haraldi Franklín Magnús né Gunnlaugi Árna Sveinssyni tókst að tryggja sér sæti á Opna breska meistaramótinu í golfi er þeir tóku þátt á lokaúrtökumótum fyrir komandi risamót í dag.
Fjögur 72 manna lokaúrtökumót fóru fram víðsvegar um Bretland í dag. Fimm efstu úr hverju móti fyrir sig fara inn á mótið. Þeir Haraldur Franklín, sem er eini Íslendingurinn sem hefur tekið þátt á Opna breska, og Gunnlaugur Árni, sem keppti nýverið á Opna bandaríska meistaramótinu, fyrstur íslenskra karla, voru meðal keppenda á sitt hvoru mótinu. Haraldur Franklín keppti á Dundonald Links-vellinum í Skotlandi þar sem leiknir voru tveir hringir. Haraldur var í vandræðum á fyrri hring dagsins þar sem hann lék á 81 höggi, níu höggum yfir pari vallar. Ljóst var eftir þann hring að hann þyrfti einhverskonar kraftaverk til að komast áfram og þrátt fyrir að hafa leikið síðari hringinn feiknavel, á höggi undir pari, hafnaði hann í 35. sæti, á átta yfir pari í heildina. Haraldur fer því ekki á mótið og það gerir Gunnlaugur Árni ekki heldur. Sá spilaði á West Lancshire-vellinum á Englandi. Hann lék fyrri hring dagsins á þremur höggum yfir pari, 75 höggum. Á síðari hringnum fékk Gunnlaugur Árni fjóra fugla og tvo skolla og var því á tveimur höggum undir pari. Hann var því á einu yfir pari í heildina á hringjunum tveimur. Það dugði þó aðeins fyrir 36. sæti þess móts og mun hann því ekki frekar en Haraldur vera meðal keppenda þegar Opna mótið fer fram 16.-19. júlí næstkomandi.
Opna breska Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira