Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Jón Þór Stefánsson skrifar 2. júlí 2026 18:35 Siggi stormur spáir í spilin Vísir/Vilhelm Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur, segir að það stefni í gott veður um allt land um helgina. Ef til vill mun góða veðrið ekki koma fyrir norðan fyrr en á laugardag.
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis þar sem Siggi ræddi veðrið. „Ef ég væri að velta fyrir mér að fara í ferðalag og vildi vera í þurrki og björtu veðri þá eru veðurhorfurnar alveg prima um helgina, þá sérstaklega sunnan og vestanlands, svo kemur þetta einnig inn á norður og austurland. Það er að segja, við erum að fá yfir okkur hæðarhrygg og því fylgir gjarnan góðviðri og hann ætlar að dvelja hjá okkur fram yfir helgi. Þannig það er eiginlega alveg sama hvert menn fara,“ segir Siggi. Viðtalið við Sigga má sjá í spilaranum, en þar ræddi hann einnig um hitabylgjuna í Evrópu. „Það verður á morgun, föstudag, þá verður einhver úrkoma og leifar af úrkomu við norðurströndina. Síðan smám saman þornar þetta upp, og við tekur bærilegasta veður um allt land og smám saman rofar til og það verður bjart með köflum. Síðan á laugardag verða einhverjir dropar norðaustanlands sýnist mér um morguninn, en þeir fjara nú út mjög hratt, og þá léttir til. Við eigum von á mjög góðu veðri um helgina, allt að sautján til átján stiga hita. Það verður sérstaklega hlýtt fyrir austan. Þeir græða alltaf nokkrar gráður þeir sem eru hlé megin vinds.“ En hvað erum við að tala um í næstu viku? Er lægð á leiðinni? „Það er lægð á leiðinni á þriðjudagsmorgun,“ segir Siggi. „Það verður að koma vatn og hún kemur með hlýindi, mjög afdráttarlaus hlýindi. Við fögnum henni fyrir þær sakir. Þannig það má reikna með yfir tuttugu stiga hita einhversstaðar á norður og austurlandi svona á þriðjudag, miðvikudag.“ Þó verður rigning vegna hennar um sunnan og vestanvert landið, að sögn Sigga.
Veður Reykjavík síðdegis Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira