Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Andri Broddason skrifar 5. júlí 2026 15:32 Gunnlaugur Árni Sveinsson var leikmaður alþjóðaliðsins sem bar sigur úr býtum í Arnold Palmer-bikarnum. Ryan Sirius Sun/Getty Images Gunnlaugur Árni Sveinsson var hluti af alþjóðaliði sem endaði á að vinna Arnold Palmer-bikarinn. Alþjóðaliðið keppti gegn Bandaríkjunum en aðeins eitt stig skildi liðin að.
Arnord Palmer-bikarinn er áhugamannamót í golfi sem er spilað á svipaðan hátt og Ryder-bikarinn. Þetta er liðakeppni þar sem Bandaríkin keppa á móti alþjóðlegu liði. Spilaðar eru nokkrar mismunandi keppnir og eru einhverjar viðureignir blandaðar þar sem kylfingar af hvoru kyni leika saman. Mótið byrjaði á föstudaginn og lauk nú í dag. Á fyrsta keppnisdegi var spilaður fjórbolti þar sem tveir kylfingar eru saman í liði og telur lægsta skor einstaklings. Liðin voru blönduð og spilaði Gunnlaugur Árni með Mariu Jose Marin. Þau töpuðu sinni viðureign en þau voru tveim holum undir þegar þrjár voru eftir. Á laugardeginum voru spilaðir tveir hringir. Á fyrri hringnum var spilaður fjórmenningur þar sem kylfingar saman í liði slá boltann til skiptis. Þar var Gunnlaugur Árni með Daniel Bennet í liði og náðu þeir að tryggja sigurinn á næstsíðustu holu hringsins. Á seinni hring laugardagsins var einnig spilaður fjórmenningur en þá í blönduðum liðum þar sem karlkyns og kvenkyns kylfingar eru saman. Þá var Gunnlaugur Árni með Caitlin Maurice en þau unnu aðeins eina holu saman og töpuðu þeirri viðureign stórt. Lokaviðureignin var spiluð í dag þar sem raðað var upp í einfalda holukeppni milli kylfinga. Þar mætti Gunnlaugur Árni Connor Williams og spilaði Gunnlaugur vel. Hann vann sex holur af fyrri níu holunum og hafði Williams engin svör við því. Alþjóðaliðið endaði með 30,5 stig gegn Bandaríkjunum sem voru með 29,5 stig. Titillinn var því unninn með minnsta mun.
Íslendingar erlendis Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira