Gunnlaugur Árni íþróttakarl ársins í LSU Sindri Sverrisson skrifar 10. júlí 2026 13:15 Forráðamenn LSU eru skiljanlega stoltir af Gunnlaugi Árna Sveinssyni sem afrekaði það meðal annars að komast inn á US Open. Getty/Kate McShane Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hlaut mikinn heiður í gær þegar hann var valinn íþróttakarl ársins í Louisiana State háskólanum.
Þessi mikla nafnbót þarf ekki að koma á óvart eftir að Gunnlaugur Árni afrekaði það meðal annars, enn aðeins tvítugur, að komast inn á sjálft Opna bandaríska mótið í sumar, fyrstur íslenskra karla. Hann var að ljúka sínu öðru ári í LSU og var einn sex íþróttamanna sem tilnefndir voru sem íþróttkarl ársins hjá þessum virta skóla. Hinir komu úr körfubolta, sundi, tennis, frjálsum íþróttum og amerískum fótbolta. View this post on Instagram A post shared by LSU Athletics (@lsusports) Samkvæmt yfirliti GSÍ lék Gunnlaugur Árni 31 keppnishring fyrir LSU á tímabilinu og var meðalskor hans 70,39 högg. Það er sjöunda lægsta meðalskor sem leikmaður LSU hefur náð á einu tímabili. Hann lék 20 hringi á pari eða betur og þar af 15 hringi undir 70 höggum. Bestum árangri náði Gunnlaugur Árni þegar hann gerði sér lítið fyrir og vann Fallen Oak Invitational-mótið í október og þá varð hann einnig í 2. sæti á öðru móti; Jackson T. Stephens Cup. Gunnlaugur Árni lék einnig á NCAA-meistaramótinu þar sem hann var magnaður á seinni tveimur hringjunum og endaði í 32. sæti, eftir að hafa spilað seinni 36 holurnar á -7 höggum. Þá var hann í sigurliði heimsliðsins gegn Bandaríkjunum á Arnold Palmer Cup fyrir skömmu. LSU hefur alið af sér íþróttafólk á borð við körfuboltamanninn Shaquille O‘Neal og stangastökkvarann Mondo Duplantis. Fjórtán núverandi eða fyrrverandi íþróttamenn skólans tóku þátt á Ólympíuleikunum í París 2024 og unnu samtals átta verðlaun, þar af þrenn gullverðlaun.
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira