Vonar að hann fái að halda áfram að reykja Andri Broddason skrifar 16. júlí 2026 16:05 Dan Brown hefur vakið mikla athygli hjá áhorfendum golfsins með því að vera skemmtilegur karakter Richard Heathcote/Getty Images Dan Brown er nafn sem kannski ekki allir þekkja en hann er sem stendur í fyrsta sæti ásamt Sung-Jae Im á Opna breska risamótinu í golfi. Hann hefur vakið athygli fyrir að vera létt og skemmtileg persóna á golfvellinum.
Dan Brown spilaði vel á Opna breska risamótinu í dag og endaði hringinn á 66 höggum eða fjórum höggum undir pari. Hann hefur vakið athygli hjá stuðningsmönnum fyrir að vera duglegur að taka myndir með áhorfendum og að reykja á miðjum keppnishring. Opna breska meistaramótið er spilað í ár á Royal Birkdale-vellinum í Englandi en mikill hiti hefur þurrkað upp völlinn. Búið er að vara áhorfendur við að fara varlega með eld vegna þess hve völlurinn er þurr. Ekki hefur enn þá verið talað við Brown um hvort hann megi reykja á vellinum en hann hefur passað sig að slökkva vel í sígarettunum þegar hann klárar þær. Ástæðan fyrir reykingunum er svo hann geti haldið ró sinni á meðan hann er að spila. Þegar líður á hringinn stressast hann upp en hann reykir sígarettur til þess að róa sig aftur niður. Á ferlinum hefur Brown unnið tvö mót á DP World mótaröðinni en hann hefur ekki náð niðurskurðinum í tíu af þrettán mótum ársins. Hann veit að mótið er ekki búið eftir aðeins einn hring en hann vonast til þess að vera ofarlega á mótinu á sunnudaginn eins og hann er í dag.
Opna breska Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira